Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna, óskar þess að sænskir stjórnmálamenn og fjölmiðlar hætti að nota vettvanginn X sem er í eigu Elon Musk. Fyrrverandi forsætisráðherrann vill að stjórnvöld, fjölmiðlar og blaðamenn yfirgefi X í samstilltu átaki. Sjálf er hún á X og er ekkert á förum af því að „svo margir stjórnmálamenn og fjölmiðlar eru enn þar.“
Magdalena Andersson var í viðtali við Expressen í tengslum við varnarmálaráðstefnuna í Sälen, þar sem samfélagsmiðlar voru til umræðu og hún nefndi þá sérstaklega X sem miðil sem enginn ætti að vera á:
„Ég er mjög spennt fyrir því, ef allir sænskir blaðamenn kjósi til dæmis að yfirgefa X, þá eru margir kostir við það.“
Formaður sænskra sósíaldemókrata sem er ofurguð Samfylkingarinnar á Íslandi lýsir sambandi stjórnmála, fjölmiðla og vettvangsins X sem „slæmu samlífi“ og segist vilja sjá sameiginlega ákvörðun um að yfirgefa vettvanginn:
„Ég held að það væri frábært ef að við yfirgefum öll X.“
En af hverju yfirgefur hún ekki sjálf X, af hverju er hún áfram á þessum hræðilega samfélagsmiðli?
„Á meðan svo margir stjórnmálamenn og fjölmiðlar eru á X, þá verð ég líka þar.“
Gagnrýnin á X kemur samtímis og jafnaðarmenn fjárfesta í öðrum alþjóðlegum samfélagsmiðlum. Magdalena Andersson er með aðgang á Tiktok, sem er í eigu kínverska fyrirtækisins ByteDance og flokkur Sósíaldemókrata notar Facebook og Instagram til að dreifa pólitískum skilaboðum í gegnum fjölmiðlafyrirtæki sitt Aktuellt i Politiken.
Margir sænskir útgefendur hafi nýlega kært Meta, sem á Facebook og Instagram, til lögreglunnar. Ákærurnar varða meðal annars dreifingu falsauglýsinga þar sem nöfn sænskra blaðamanna og vörumerki eru kerfisbundið notuð til að blekkja neytendur – án þess að Meta, sem græðir sjálft á svikunum hafi nein afskipti af því.
