Vopnakoss Macrons

Hinn misheppnaði forseti Frakklands Emmanuel Macron vill að Zelensky kaupi frönsk vopn með peningunum sem ESB lánaði honum. Macron er afar óvinsæll heima fyrir og núna lykta stjórnarstofnanir í Frakklandi franskri skítalykt, þar sem reiðir bændur hafa smurt opinberar byggingar með kúamykju. Macron reynir að stöðva að Úkraína kaupi bandarísk vopn fyrir lán sem Frakkar þurfa að borga. Hann vill að evrulánið fari eingöngu í evrópskan varnarmálaiðnað.

Telegraph greinir frá:

„Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hefur lengi haldið því fram að stuðningur Evrópusambandsins við Úkraínu ætti að vera notaður til að styrkja vopnaframleiðslu álfunnar og stuðla að sjálfstæði í varnarmálum gagnvart Bandaríkjunum. En Þýskaland og Holland sögðu að sú leið myndi hindra afhendingu vopna sem eru afgerandi fyrir varnir Kænugarðs, þar á meðal bandaríska Patriot loftvarnarkerfisins.“

Tveir þriðju hlutar af 100 milljörðum dala fara í vopnaframleiðslu, einn þriðji hlutinn í svartholið í fjárlögum Úkraínu.

„Bæði Þýskaland og Holland halda því fram að skilyrðin séu of ströng og sendiherra ESB sagði við The Telegraph að framkvæmdastjórnin hefði „hlustað allt of mikið á París“ og „reitt marga til reiði“ með afstöðu sinni. Þýskaland og Holland – sem bæði nota Patriot-varnarkerfið og hafa einnig gefið Úkraínu það áður – halda því einnig fram að engir aðrir kostir séu í boði en bandaríska kerfið.“

Fara efst á síðu