Allar leiðir liggja gegnum Grænland … og Ísland … til ESB

Fyrir fund utanríkisráðherra Danmerkur og Bandaríkjanna í Washington í gær var eins og flóðbylgja himins hefði opnast og allir þeir viljugu og fleiri með voru ólmir í að senda hermenn til Grænlands til varnar …. ekki árásum Rússa eða Kínverja ….. heldur Bandaríkjanna og Trumps hins ógurlega. Það eru fleiri en prófessor Jeffrey Sachs sem finnst núverandi stjórnmálaelíta aðildarríkja ESB vera sú lélegasta svo lengi sem menn muna eftir sér.

Danir flýttu sér að senda herlið, Svíþjóð sendi liðsforingja, Noregur, Frakkland og Þýskaland ætla að senda herlið og Macron opnaði sendiráð í Nuuk. Mette Frederiksen hélt blaðamannafund með Jens-Frederik Nielsen þar sem svarinn var eiðstafur að danska konungsveldinu og alræðisguði Evrópu, Ursulu von der Leyen. Samkvæmt mikilvægustu reglu rétttrúnaðarins verður að sverja hollustueið fyrst af öllu við ESB, síðan í réttri röð konungi Danmerkur, forsætisráðherra Danmerkur og landsstjóra Grænlands. Þeir sem ekki eru með á listanum eru venjulegir Grænlendingar sem ekki fá að koma til tals en stór hluti þeirra vill losna við Danmörku og verða sjálfstæð þjóð líkt og Ísland ár 1944.

Hafi ætlunin verið að knésetja Bandaríkin með þessu ESB-hallelúja-liði, þá mistókst það svo herfilega að utanríkisráðherra Danmerkur, Lars Lökke, var næstum búinn að gleypa sígarettustubbinn á hlaupum frá Hvíta húsinu eftir fundinn. Hann og Rubio + JD Vance voru sammála um einn hlut: „Við erum ósammála.“

Trump forseti ítrekaði afstöðu Bandaríkjastjórnar í gær á samfélagsmiðli Sannleikans að

„Bandaríkin þurfa Grænland til að tryggja þjóðaröryggið. Það er lífsnauðsynlegt fyrir Gullna skjöldinn sem við erum að byggja. Nató ætti að vera leiðandi fyrir okkur til að ná því. EF VIÐ GERUM ÞAÐ EKKI, ÞÁ MUNU RÚSSLAND EÐA KÍNA GERA ÞAÐ OG ÞAÐ MUN EKKI GERAST!“ 

Versta forysta í Evrópu í manna minnum

Jeffrey Sachs gjörsamlega kýlir forystumenn ESB í gólfið í umræðu hjá CIRSD:

„Ég man ekki eftir verri forystu í Evrópu en núna, og alls ekki á minni ævi. Það er enginn einstaklingur í helstu löndum ESB eða Bretlandi sem hefur nokkra vitsmunalega þýðingu eða heiðarleika eða blöndu af hvoru tveggja að mínu mati.“ 

ESB áhangendur gadda sig saman gegn Bandaríkjunum til þess að sýna að það er ESB sem er ráðandi heimsveldi á norðurhveli jarðar. Trump á sko ekkert að vera að koma þangað og krefjast málfrelsis og lýðræðis. Hvað þá samstarfs við innfædda.

Skrækir vegna gríns skipaðs sendiherra á Íslandi um landsstjórastöðu er fluga á mykjuskán ESB sem núna vinnur með Kristrúnu Frostadóttur í Brussel að því að skipuleggja hvernig endanlega megi sundra íslensku þjóðinni svo bræður berjist á Austurvelli á banaspjótum, ein fylking undir ESB-fánanum og önnur undir þeim íslenska.

Hvorki Grænlendingar né Íslendingar skipta ESB-böðlana neinu máli. Grænland og Ísland skulu inn í ESB, hvað sem það kostar.

ESB hermenn koma til Grænlands:

Fara efst á síðu