Himininn yfir Íran er tómur. Núna lítur hann út eins og yfir Venesúela fyrir handtöku Maduro.
(Mynd hér að ofan var tekin í gær miðvikudaginn 14. janúar 2026 á FlightAware klukkan 8 að kveldi EST eða aðfaranótt fimmtudags að íslenskum tíma.)
Mannfjöldinn í mótmælunum í Íran stækkar. Nótt eftir nótt fölgar þeim sem sjá enga aðra leið en fara út á götur í byltingu almennings til að koma klerkastjórninni frá. Fólkið vill að íslamska stjórnin yfirgefi landið og komi aldrei aftur.
🔥 Núna er Teheran á barmi þess að falla í hendur byltingarmanna:
🔥 الان
— بنت بغداد حفيدة صدام (@y112250) January 14, 2026
طهران على وشك السقوط بيد الثوار pic.twitter.com/ujoNQbStrx
Samkvæmt ísrelska herforingjanum Amir Avivi, þá eru tagar klerkastjórnarinnar taldir og einungis spurning um daga eða klukkutíma áður en stjórnin fellur. 🚨 „ÞAÐ VERÐUR ENGIN ÍRÖNSK STJÓRN“ — KLUKKAN TIKKAR
„Það verður ekkert íranskt stjórnkerfi. Það verður gerð árás undir forystu Bandaríkjanna með stuðningi Ísraels. Stjórnin á engan möguleika.“
Íslamska einræðið í Teheran nálgast endalokin
Á meðan milljónir Írana flæða út á götur og stjórnin drepur sitt eigið fólk, segja sterkar raddir innan öryggisstofnunar Ísraels opinskátt það sem áður var óhugsandi: „Íslamska einræðið í Teheran nálgast endalokin.“
Samkvæmt heimildum er stjórn Írans að molna sundur innanfrá:
- liðhlaup eru að hefjast
- elítan er að gefast upp
- öryggissveitir hafa sundrast
- innsti hringur Khamenei er sagður vera að undirbúa flótta
Þannig lítur hrun yfirvalda út á lokametrunum. Almenningur óttast ekki lengur. Heimurinn er ekki með neina sýndarmennsku lengur. Og Washington hunsar ekki það sem er að gerast lengur.
Þetta snýst ekki lengur um svæðisbundna stjórnmál.


