Nóbelsverðlaunahafinn María Corina Machado sem fékk friðarverðlaun Nóbels 2025 heimsótti Donald Trump forseta Bandaríkjanna eftir vel heppnaða aðgerð bandaríska hersins í Venesúela gegn Mandúró glæpaforseta. Með sér hafði hún verðlaunapening Nóbels sem hún virðist hafa sett í stóran ramma með þakklætisskilaboðum til Donald Trumps frá þjóð sinni fyrir að aðstoða við að koma á frelsi í Venesúela. Nóbelsnefndinni í Osló er ekki skemmt og lýsti þegar yfir að verðlaunin séu persónubundin og ekki hægt að framselja þau til neins annars.
Á fimmtudag tók Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, á móti Maríu Corinu Machado, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, í Hvíta húsinu. Varla eru tvær vikur liðnar eftir velheppnaða handtöku Bandaríkjahers á Nicolás Maduro forseta Venesúela sem fluttur var til Bandaríkjanna.
Trump þakkaði Machado fyrir heiðurinn að hafa framvísað friðarverðlaunum Nóbels til hans. Trump skrifar í færslu á Samfélagsmiðli Sannleikans:
„Það var mér mikill heiður að hitta Maríu Corina Machado frá Venesúela í dag. Hún er frábær kona sem hefur gengið í gegnum svo margt. María afhenti mér friðarverðlaun Nóbels fyrir það starf sem ég hef unnið. Svo frábær gagnkvæm virðing. Þakka þér fyrir, María!“
Samkvæmt frétt frá Fox News var orðan afhent sem þakklætisvottur til Trumps fyrir aðgerðir hans gegn stjórn Maduro.
Afstaða Nóbelsnefndarinnar
Afhending Machado á friðarverðlaununum til Trumps vakti strax viðbrögð í Evrópu. Í Noregi lýstu fréttaskýrendur ástandinu sem „súrrealísku“ og norska Nóbelsnefndin sendi frá sér stutta tilkynningu, þar sem vísað var til fyrri yfirlýsinga og lagði áherslu á að Nóbelsverðlaunin væru persónuleg og ekki væri hægt að framselja þau til neins annars.
Friðarverðlaunin tilheyra því formlega Machado, jafnvel þótt þau hafi verið tímabundið sýnd eða afhent öðrum á táknrænan hátt. Nóbelsnefndin hefur áður verið skýr um að ekki megi nota verðlaunin sem pólitískt tæki eða gjöf.
Stjórnmálabaráttan í Venesúela
Fjölmiðlar stjórnarandstöðunnar í Venesúela lýsa friðarverðlaununum og fundi þeirra Machado og Trumps sem viðurkenningu á hlutverki Machado í baráttunni gegn einræðisherranum Maduro. Aðrar raddir vara við samstarfi stjórnarandstöðunnar og Bandaríkjanna.
Sú staðreynd að Nóbelsverðlaunin eru núna í kastljósinu styrkir þá mynd að átökin í Venesúela eru ekki aðeins hernaðarleg og pólitísk – heldur einnig táknræn. Fyrir Trump var fundurinn tækifæri til að sýna fram á kraft í aðgerðum Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Fyrir Machado sem er foringi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, má búast við að framsal friðarverðlaunanna geti hafi afleiðingar langt út fyrir fundarsal Hvíta hússins.
