Vinstrimenn voru áður „mestu andstæðingar glóbalistanna – hvað í ósköpunum gerðist?“

Hér árum áður voru vinstrimenn mestu „andstæðingar glóbalistanna og ESB.“ En svo gerðist eitthvað. Hvað? Nils Littorin, flokksformaður Malmö-listans, veltir þessu fyrir sér en hann var áður virkur vinstri maður sem þroskaðist og snéri af þeirri vegferð.

Hvað hefur komið fyrir vinstrimenn? Nils Littorin er læknir og á sjálfur bakgrunn á vinstri vængnum. Hann veltir því fyrir sér hvað hafi eiginlega komið fyrir vinstri hreyfinguna sem börðust hart gegn alþjóðlegum auðjöfrum en gera það ekki lengur. Þeir sem áður voru „stærstu andstæðingar glóbalismans“ eru það ekki lengur. Littorin skrifar í færslu á X:

„Manstu þegar vinstrimenn voru mestu andstæðingar glóbalistanna, andstæðingar ESB og börðust fyrir tjáningarfrelsi??? Það er eins og það sé langt síðan en ég man það, því ég var þar. Hvað í ósköpunum gerðist?“

Í samanburði við Vinstri græna á Íslandi er svarið einfalt: Foringi vinstri manna dagaði uppi sem búrókrati í alþjóðakerfinu. Hvers vegna skyldu vinstri menn gagnrýna kerfi sem gefur þeim feitar stöður?

Fara efst á síðu