Mynd dreift af handtöku Maduro – fer fyrir dómstól í Bandaríkjunum

Mynd sem sýnir Nicolás Maduro, forseta Venesúela, handtekinn af bandarískum hermönnum er núna dreift um allan heim. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins verða Nicolas Maduro, forseti Venesúela, og Cilla Flores, eiginkona hans, ákærð og verða dregin fyrir dómstóla í New York-ríki.

Pam Bondi, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti á samfélagsmiðlinum X (sjá að neðan) að hjónin séu ákærð fyrir fíkniefnahryðjuverk (e. narco-terrorism), innflutning á kókaíni, að hafa undir höndum vopn og fyrir að ætla nota umrædd vopn gegn Bandaríkjunum. „Þau munu brátt mæta fullum þunga bandaríska réttarkerfisins á bandarískri grundu fyrir bandarískum dómstólum,“ segir Bondi í færslunni. Hún þakkar einnig Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir að „sýna hugrekki með því að krefjast ábyrgðar fyrir hönd bandarísku þjóðarinnar.“

Myndskeið af vel heppnaðri árás Bandaríkjamanna:

Trump skrifaði á Truth social:

„Bandaríkin hafa framkvæmt stórfellda heppnaða loftárás gegn Venesúela og leiðtoga landsins, Nicolas Maduro forseta, sem ásamt eiginkonu sinni var handtekinn og fluttur úr landi. Þessi aðgerð var gerð samkvæmt bandarískum lögum. Nánari upplýsingar koma síðar. Blaðamannafundur verður haldinn í dag klukkan 11 í Mar-a-Lago. Þökkum fyrir athyglina á þessu máli! Donald J. Trump forseti.“

Fara efst á síðu