Hún er öflugasti hagfræðingur ESB – og gæti bráðlega orðið formaður Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum, WEF. Núna hefur komið í ljós að seðlabankastjórinn Christina Lagarde þénar miklu meira en áður hefur verið greint frá. Raunveruleg árslaun hennar eru yfir 700.000 evrur – sem jafngildir rúmum 103 milljónum íslenskum krónum á ári.
Yfirlit Financial Times sýnir að seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu (ECB), Christine Lagarde, fékk samtals um 726.000 evrur í laun árið 2024 – 56% meira en opinber grunnlaun hennar eru upp á 466.000 evrur. Þetta samsvarar rétt 103,6 milljónum króna, samanborið við tilkynnt laun upp á um 68,9 milljónir króna.
Til samanburðar þénar Jay Powell, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, samsvarandi 172.000 evrur sem er rétt innan við 25,5 milljónir króna samkvæmt bandarískum lögum.
Skattfrjálsar bætur og faldar aukatekjur
Auk grunnlauna sinna fær Lagarde um 135.000 evrur í skattfrjálsar bætur, þar á meðal húsnæðisgreiðslur sem samsvarar 20 milljónum íslenskra króna. Þessar greiðslur eru ekki birtar í ársreikningum Seðlabanka Evrópu.
Að auki fær hún um 125.000 evrur (um 18,5 milljónir íslenskra króna) fyrir starf sitt hjá Alþjóðabankanum. Þessar tekjur eru heldur ekki nefndar í opinberum tölum Seðlabanka Evrópu.
Samkvæmt greiningu Financial Times gætu heildarlaun hennar á átta árum sem bankastjóra Seðlabanka ESB numið 6,5 milljónum evra eða tæplega einum milljarði íslenskra króna. Eftir starfslok er gert ráð fyrir að hún fái árlegan lífeyri frá Seðlabanka Evrópu upp á 178.000 evrur eða rétt rúmar 26 milljónir íslenskra króna.
ESB-stjórnmálamenn hneykslaðir
„Það er hneykslanlegt að forstjóri Deutsche Bank sé meira gagnsær með laun sín en Madame Lagarde” segir Fabio De Masi, þingmaður Evrópuþingsins og leiðtogi vinstri sinnaða þýska flokksins Sahra Wagenknecht Union (BSW). Hann krefst þess að Seðlabanki Evrópu lúti sömu gagnsæisreglum og skráð fyrirtæki í ESB.
Í kjölfar uppljóstrananna um laun hennar er einnig rætt um seðlabankastjórann sem næsta formanns Alþjóðaefnahagsráðsins WEF. Klaus Schwab, stofnandi og fyrrverandi formaður WEF, staðfestir að breyting hafi verið skipulögð í nokkur ár og að þegar hafi verið undirbúin aðstaða fyrir hana í Sviss.
Lagarde hefur neitað fréttum um að hún myndi taka við embætti í náinni framtíð og að hún ætli að ljúka kjörtímabili sínu til ársins 2027.
WEF setur á yfirþjóðleg stefnumál og yfirþjóðlegt vald án stuðnings almennings. WEF hafa verið gagnrýnd fyrir skort á gagnsæi og beinist sú gagnrýni einnig að Seðlabanka Evrópusambandsins.
