Ríkisstjórnin getur tekið pokann

Í nýju viðtali við Karl Gunnarsson flugstjóra í Kanada kennir ýmissa grasa. Farið er yfir ástandið í heimsmálunum, stríðið í Íran, svikula stjórnmálamenn í Kanada og á Íslandi og hversu rétt Trump sé að gera með því að yfirgefa sokknar spilltar stofnanir eins og WHO og SÞ.

Íslendingar eiga að fylgja Bandaríkjunum að málum og segja Kristrúnu Frostadóttur og stöllum hennar í ríkisstjórninni að hypja sig burtu. Þær mega taka pokann og fara, þjóðin þarf ekki slíkar afætur við barm sér sem ala á sundrungu og fjárhagslegri kúgun á landsmenn.