Þáttastjórnendur Ísafoldar, þau Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason, hittust í Reykjavík um síðustu helgi. Þau ræða um upplifunina af heimsókninni og þau mál sem farin eru að naga beinagrind stjórnarskrárinnar eins og ofríki kvenna sem tekið hafa yfir stjórnina á þjóðarheimilinu, stofnunum ríkis og sveitarstjórna og bókstaflega gleypt menntakerfið.
Íris Erlingsdóttir hafði gert smá könnun á íslenskum orðabókum og kom í ljós að búið er að útiloka konur frá því að vera fífl, hálfvitar og bjánar úr málinu. Það hlutskipti er í nútímanum eingöngu hlutverk karla eins og konur vilja sem myrða málfarið.
Bæði voru þau sammála um að það hallaði mikið á þjóðarheimilið að búið er að ræna börnum mannlegum fyrirmyndum samtímis sem kvenlegir heimsleiðtogar safnast saman í Hörpu til að ræða tilvistarkreppu íslenskra karlmanna. Forseti Íslands í fararbroddi.
Hvað yrði sagt ef karlar héldu heimsþing og ræddu tilvistarkreppu ungra kvenna?
Kvennabaráttan hefur snúist upp í algjöra mótsögn við mannréttindi mannkyns, bæði kven- og karlkyns.
Söknuður ríkir í hjarta til gamla góða Íslands sem var frjálsara og jafnréttara áður fyrr.
Hvar eruð þið íslenskir karlmenn?