HATRIÐ Á VESTRÆNUM GILDUM

Annar þáttur Ísafoldar hefst á hryllilegum morðum á forseta Minnesotaþings í Bandaríkjunum, Melissu Hortman og eiginmanni hennar og skotárás á öldungadeildarþingmanninn John Hoffman og eiginkonu hans einnig í Minnesota. Listi með nöfnum 70 stjórnmálamanna fannst í bifreið morðingjans og miklar umræður eru í gangi um markmið hans.

Svokölluð NGO (non governmental organizations) eru einkarekin samtök sem tjalda því til að þau séu rekin til styrktar góðgerðastörfum. Ríkið dælir peningum skattgreiðenda í samtökin sem síðan senda frá sér launaða atvinnumótmælendur sem standa fyrir óeirðum, kveikja í bílum, rústa verslunum m.fl.

Samtökin 78 á Íslandi eru NGO samtök og hafa fjárlög ríkisins nær 17-faldast til samtakanna frá 2017-2024. Samtökin stunda persónunjósnir til að koma höggi á þá sem ekki tilbiðja trans hugmyndafræðina sem S78 breiðir út fyrir fé skattgreiðenda. Samtökin hafa kært blaðamanninn Pál Vilhjálmsson fyrir að halda því fram að kynin séu tvö, maður og kona. Einnig hafa S78 kært Eld Smára Kristinsson sem einnig trúir því að kynin séu ekki fleiri en tvö, maður og kona.

Utanríkisráðherra Íslands hefur verið kærður fyrir landráð vegna Bókunar 35. Að undanförnu hefur færst í vöxt að stjórnvöld reki einstaklinga frá störfum ef viðkomandi hefur aðra skoðun en yfirvöldum er þóknanleg. Nýjasta dæmið er svipting Kalla Snæ á læknaleyfi sínu en hann hefur farið fram á úttekt á þeirri reynslu sem finnst eftir Covid-faraldurinn.

Mitt í öllu þessu hefja Íslendingar sem fengið hafa nóg fundi á Austurvelli. Ísland þvert á flokka hópurinn vex og margir Íslendingar m.a. erlendis senda hópnum árnaðaróskir og hvetja áfram.

Það gerir Ísafold líka og segir Áfram Ísland!

105 views

Fara efst á síðu