Forseti Ísland fer með ósannindi gagnvart lýðræðislega kjörinni stjórn Bandaríkjanna. Í opinberri heimsókn til Noregs í fyrra tilkynnti hún öllum að við lifðum á áhugaverðum tímum, því Bandaríkjastjórn hefði „bannað orðið kona á vefsíðum sínum í Bandaríkjunum.” Tímarnir eru svo sannarlega áhugaverðir, því Trump bannaði karlmönnum að keppa í kvennaíþróttum. Forseti Íslands tekur undir heimatilbúinn áróður transhreyfingarinnar um að Trump hefði bannað orðið kona en það er í reynd transhreyfingin sem vill nota orðin „fæðingaraðili” og „legberi” í staðinn. Forseti Íslands getur verið róleg, Trump hefur ekki bannað henni að vera kona, hvorki í orði eða á borði.