Besti sonur Íslands fallinn frá

Davíð Oddsson besti sonur Íslands er fallinn frá. Með honum er stærsti leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslands á eftir Jóni Sigurðssyni horfinn af braut. Með Davíð Oddssyni er fallinn einn merkasti stjórnmálaskörungur samtímans. Baráttumaður sem ætíð fylgdi kjörorðinu: „Gjör rétt, þol ei órétt.”

Íris Erlingsdóttir gerði úttekt á menntamálum á Íslandi með aðstoð gervigreindar og útkoman var ekki til að hrópa húrra fyrir. Stöðugt meira fé er varið í menntamálin en námsárangurinn er í öfugu hlutfalli. Núna er svo komið að Ísland er á botninum í les- og reiknikunnáttu barna þrátt fyrir að vera í hópi þeirra landa innan OECD sem eyða hvað mestu fé í hvern námsmann. Peningarnir virðast fara í mæðraveldið sem öllu ræður og hefur hreiðrað um sig en eyðir meira í sjálft sig en nemendur sem sitja á hakanum. Hér er mikið verk að vinna að koma málum í lag.

Frá Bessastöðum berast hneykslin, núna síðast þegar Björn Skúlason forsetamaki neitaði heiðursboði Melaníu Trump um að vera með í verkefni nu Eflum framtíðina saman, Fostering the Future Together, sem vinnur meðal annars að:

Forgangsröðun á persónulegum þroska barna

Sameiningarátaki varðandi börn, tækni og menntun

Samstarfi við einkageirann til að veita aðgang að nýstárlegri menntatækni, þar á meðal gervigreind og vélmennum

Miðlun lausna sem ná yfir kosti og áhættu gervigreindar

Hjónin á Bessastöðum hegða sér eins og barnalegir aðgerðarsinnar sem hafa Bandaríkin á hornum sér, þá sér í lagi forseta Bandaríkjanna Donald Trump.