Viðar Sigurðsson átti við heilsuvandamál að etja og fékk enga lausn á Íslandi. Annað mál var að sonur hans með móður frá Kenýa hlaut ekki kennslu í grunnskólanum á Íslandi.
Viðar gagnrýnir skólakerfið á Íslandi. Hann segir kennarana sem flestir eru kvenmenn reyna að koma getuleysi sínu að kenna yfir á foreldrana. Þegar yfir 40% drengja læra ekki að lesa sér til skilnings lengur í grunnskólum Íslands, þá er það kannski ekki svo skrýtið að vandi steðji að með börn af erlendum eða hálferlendum uppruna.
Viðar gagnrýndi einnig klámið sem skólarnir troða upp á börn og trans-ruglið að maður geti verið kona og kona maður. Fyrir það varð hann nánast gerður útlægur og var ekki öruggur um að yfirvöld myndu ekki reyna að taka frá honum son sinn Einar Frey.
Viðar sló tvær flugur í einu höggi með því að flytja að minnsta kosti tímabundið til Kenýa í Afríku. Bæði fékk hann lausn á nýrnaveikinni sem læknaði nýrun svo þau fóru úr 50% virkni upp í yfir 90% virkni og núnar er Einar Freyr Viðarson prýðilegur nemandi í kristnum einkaskóla, þar sem honum er kennt að lesa, skrifa og reikna. Engir örðugleikar eru í skólanum, kennararnir vinna störfin sín og hlaupa ekki skælandi í foreldrana eins og á Íslandi.
Viðar segir samfélagið verða brenglað, þegar mannlegar fyrirmyndir eru útilokaðar úr heilum starfsgreinum og verið er að troða kynfári í heila ungra barna.