Hlutirnir eru farnir að gerast hratt, bæði á heimsvísu og á Íslandi. Ný þjóðaröryggisskýrsta Bandaríkjanna veldur usla meðal ráðamanna í ESB og Nató – og auðvitað Þorgerði, Kristrúnu og Höllu sem skilja ekki að tala verður við Rússa ef semja á um frið í Úkraínu. Bandaríkjamenn benda á þá einföldu staðreynd að ef ríki í Evrópu sem hafa fargað fullveldinu og eru að eyðileggja lönd sín með því að fylla þau af fólki með allt afstöðu til lífsins, þá verða Bandaríkjamenn að endurskoða samstarf við viðkomandi bandamenn, því þeir eru ekki lengur þeir sömu og skrifuðu uppphaflega undir samninga við Bandaríkin.
Elítan í ESB froðufellir og á Íslandi væla valkyrjurnar undan Trump og stutt í að þær ásaki hann um rasisma eins og fv. forsætisráðherra Svíþjóðar, Frederik Reinfeldt gerir. Valkyrjurnar eru komnar um borð í sökkvandi skip ESB sem er að eyðileggja grundvöll iðnaðar og framleiðslu með reglugerðafargani og grænum sköttum. Slóttugt bragð íslenska utanríkisráðherrans er að binda hendur Íslands með handjárnasamningum bæði við Þýskaland og ESB.
Þjóðólfur hefur snarað kaflanum um Evrópu í lauslegri þýðingu yfir á Íslensku sem er ásamt þjóðaröryggisskýrslunni í heild á ensku aðgengilegur á heimasíðu Þjóðólfs.
RÚV kastaði grímunni og sniðgengur tónlistarhátíðina Eurovision vegna þess að stjórn evrópskra sjónvarpsstöðva leyfir Ísrael að vera með í keppninni. Í staðinn er talað um að Gyðingahatarinn Páll Óskar fái peningana ásamt öðrum höturum til að búa til eigin tónlist í staðinn. Verði þeim að góðu, Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason þáttastjórnendur voru algjörlega sammála í því að landsmenn geta hent slíkum Gyðingahöturum í ruslið. Það eina sem þeir náðu árangri í þessa vikuna var að nú veit alheimur að Íslendingar hata Gyðinga.
En Gyðingar hata enga samanber tónlistarmanninn Michael HarPaz en hann sendir Gyðingahöturum um allan heim áminningu um að hryðjuverkamenn Hamas slökktu á tónlistinni þegar þeir réðust á Ísrael og slátruðu saklausu fólki, konum og börnum, sem voru á tónlistarhátíð.