Transríkið Ísland 2

Trans hugmyndafræðin íklæðist gerfi mannréttinda en ræðst í hatri gegn öllum þeim sem telja hið eðlilega og sjálfsagða að kynin séu aðeins tvö: karl og kona. Aðskilnaður andans frá efninu til að segjast geta breytt lögmáli náttúrunnar og læknisfræðilegar tilraunir í því skyni hefur eyðilagt líf fjölda ungmenna sem eiga um sárt að binda og geta ekki snúið aftur til baka. Slíkt kukl má kalla Transenstein til samanburðar við Frankenstein.

Nýlega var Páll Vilhjálmsson blaðamaður sýknaður af kæru Samtakanna 78 fyrir hatursorðræðu. Enginn fótur var fyrir kæruatriðum, þar sem Páll var einungis á málefnalegan hátt að lýsa yfir þeirri skoðun sinni, að klámfengið kennsluefni ætti ekki heima í grunnskólum landsins. Eldur Smári hefur lent í svipuðu eins og aðrir einstaklingar, að ekki má neina aðra skoðun á því sem Samtökin 78 gera en þá sem stjórn samtakanna samþykkir.

S78 hefur fengið mikla peninga frá skattgreiðendum íslenska ríkisins til mannréttindabaráttu en misnotar féð til að ofsækja og kæra þá sem ekki eru sammála transhugmyndafræðinni.

Eldur Smári Kristinsson er að verða nafn úti í hinum stóra heimi en honum er boðið að halda fyrirlestur núna í haust í Bandaríkjunum á ráðstefnu Genspect og þar mun annar þáttastjórnenda Ísafoldar, Íris Erlingsdóttir einnig mæta og fylgjast með umræðunni og taka viðtöl og skrifa fréttir, svo íslenskur almenningur, sem sveltur er af raunverulegum fréttum um málið geti fylgst með því sem er að gerast.


Fara efst á síðu