Magnus Olsson, Svíþjóðardemókrati, í stjórnarandstöðu í borgarstjórn Malmö hefur aldeilis hrist upp í vinstra liðinu eftir að hann birti færslu á X (sjá að neðan) þar sem hann hvetur Svía til að eignast fleiri börn, því „annars mun Múhameð sigra.“ Hann bendir á Ungverjaland sem fyrirmynd en þar hefur ríkisstjórnin gert umtalsverðar breytingar til að auðvelda fólki að mynda fjölskyldu og eignast börn.
Í færslunni skrifar Magnus Olsson:
„Það er brjálæði að konur í Svíþjóð séu að láta fjarlægja legið á sér í stað þess að verða ófrískar. Fjölmiðlar og annar sori eru sekir. En hvað gerum við? Það þarf herferð núna í stíl með: Þorið að fæða árið 2026! Það verður að endurskoða bætur og þess háttar. Annars mun Múhameð sigra.“

Færslan hefur vakið gríðarlega reiði og angist vinstrimanna og í grein í Sydsvenskan segir einn starfsmaður Expo að Svíþjóðardemókratar séu rasistaflokkur sem gjarnan komi með „samsæriskenninguna um íbúaskipti.“
Olsson er samt ekkert á því að gefa eftir og segir meðal annars eftirfarandi:
„Færsla mín getur vissulega ögrað vinstrimönnum. Hins vegar er tilgangur færslunnar að beina sjónum að þeirri metlágu fæðingartíðni sem við búum við í Svíþjóð. Fleiri ættu að hafa áhyggjur af þessu. Ég sé líka vandamál tengd því að lýðfræðin, vegna fjöldainnflutninga, hefur breyst verulega á örfáum árum.“
Svíar verða í minnihluta í Svíþjóð ár 2065
Kyösti Tarvainen PhD, dósent emeritus í kerfisgreiningu við Aalto háskólann í Helsinki skrifaði einnig um lýðfræðilega þróun Svíþjóðar fyrir fjórum árum síðan:
„Ég hef rannsakað lýðfræðilega þróun í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi í tíu ár og notað hefðbundna lýðfræðilega aðferð, svo kallaða hópþátta-aðferð. Samkvæmt þessari aðferð þá verða innfæddir svíar í minnihluta árið 2065 að óbreyttum fólksinnflutningum.“
Þetta er sérstaklega áberandi í Malmö, heimabæ Magnúsar Olssonar. Þar hafa íbúaskiptin gengið svo langt að eigin „aðlögunarfulltrúi“ Malmö borgar telur að nemendur eigi að fá að læra á eigin móðurmáli í stað sænsku. Jafnvel Sydsvenskan, sem dregur í efa að um íbúaskipti sé að ræða samkvæmt grein Magnus Olsson, viðurkennir að „meirihluti námsmanna í Malmö eiga uppruna sinn í öðrum löndum en Svíþjóð.“