Verða Íslendingar í minnihluta eftir 10-15 ár?

Sigfús Aðalsteinsson er mikill baráttumaður og unnandi frelsis. Hjarta hans slær fyrir þjóðina og hann ásamt öðrum fósturlandsvinum stofnuðu hreyfinguna Þvert á flokka sem hefur safnað Íslendingum kringum þjóðfánann á Austurvelli mörgum sinnum í ár. Hann ræðir í þessum viðtalsþætti við Gústaf Skúlason um geðveikt ástand í kjölfar galopinna eftirlitslausra landamæra en margir óyndismenn nota tækifærið og lauma sér til landsins með skelfilegum afleiðingum eins og nýlegt dæmi frá Kringlunni í Reykjavík sýnir. Sjálfur hefur Sigfús lent í ungum erlendum mönnum sem sýna tennurnar.

Á örskömmum tíma hefur fjöldi aðfluttra orðið það mikill að það tekur bara um 10 til 15 ár með sama áframhaldi að gera Íslendinga að minnihlutahóp í eigin landi. Flóttamannakostnaðurinn er gríðarlegur og bara í Reykjavík er talan um 1.800 aðflutta sem lifa á kostnað skattgreiðenda.

Kostnaðurinn er gríðarlegur og fáir skilja, hvernig þjóðin hefur efni á þessum velferðarinnflutningi á sama tíma og landsmenn eiga varla þak yfir höfuðið og verið er að frysta fasteignamarkaðinn frá aðgengi ungra fjölskyldna sem vilja eignast húsnæði. Greiðslumat bankanna er út í hött, því það útilokar fleiri en unga fólkið frá fasteignamarkaðinum. Biðraðir eru að elliheimilum og heilsugæslustöðvum, því það vantar peninga en peninga vantar ekki, þegar styrkja á Úkraínu eða erlend kynsegin samtök.

Ríkisstjórn valkyrjanna selur út Ísland til ESB þvert á vilja þjóðarinnar sem er betur komin á eigin kjöl en að verða kjöldregin af hinum nýju hermöngurum Evrópu. Spillingin er svo mikil á Íslandi að það gæti tekið langan tíma til að uppfylla skilyrði evrunnar ef það verður þá nokkurn tímann hægt.

Sigfús Aðalsteinsson er ekki af baki dottinn og undirbýr framboðs nýs flokks í Reykjavík: OKKAR BORG. Stefnumál flokksins má sjá dregin saman í 6 punkta hér að neðan:

Smelltu á spilarann að neðan:

Fara efst á síðu