„Sænska ÍSIS-konan“ hélt konum og börnum sem þrælum á heimilinu

Írakskonan Lina Ishaq, sem er kölluð „sænska ÍSIS-konan“ í sænskum fjölmiðlum, er dæmd fyrir að hafa haldið konum og börnum sem þrælum undir stjórn Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Ishaq sem er sænskur ríkisborgari var dæmd í tólf ára fangelsi fyrir þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og alvarlega stríðsglæpi. Dómurinn er sögulegur því þetta er í fyrsta skipti sem sænskur ríkisborgari er sakfelldur fyrir slíka glæpi.

Lina Ishaq var dæmd í sex ára fangelsi fyrir alvarlegt brot gegn alþjóðalögum og alvarlegt stríðsafbrot fyrir tveimur árum. Nú hefur hún verið dæmd aftur fyrir aðra glæpi sem hún framdi á meðan hún var í Íslamska ríkinu.

Ishaq lét son sinn taka þátt í heilagastríði Íslamska ríkisins sem barna-hryðjuverkamaður. Hún afplánar dóminn í Hinseberg-fangelsinu fyrir utan Örebro í Svíþjóð.

Meginhluti dómsins snýst um þrælahald Lina Ishaq á heimili hennar í Raqqa, sjálfskipaðri höfuðborg Íslamska ríkisins, en þangað flutti hún frá Halmstad í Svíþjóð. Dómsgögn sýna að á árunum 2014 – 2016 hélt Ishaq þremur konum og sex börnum lokuðum inni á heimili sínu.

Þau voru Jasídar, aðallega konur og stúlkur, sem var rænt frá fjölskyldum sínum af hryðjuverkahópnum. Á meðan þau dvöldu með Ishaq í Raqqa var þeim ógnað og þau barin og auðmýkt til dæmis með því að klæðast múslímskum fötum.

Þann 11. febrúar tilkynnti héraðsdómstóllinn í Stokkhólmi að konan frá Íslamska ríkinu hefði verið dæmd fyrir glæpi gegn mannkyni, þjóðarmorð og alvarleg stríðsglæpi. Dómstóllinn taldi að tólf ára fangelsisdómur væri viðeigandi refsing. Þetta var einnig í fyrsta skipti sem „Svíi“ var dæmdur fyrir glæpi gegn mannkyni.

Brottvísun úr landi kom aldrei til greina þar sem Lina Ishaq var orðinn sænskur ríkisborgari. Saksóknarinn áfrýjaði dómnum til áfrýjunardómstólsins í Svea og fór fram á lífstíðardóm. Á þriðjudag staðfesti áfrýjunardómstóllinn dóm héraðsdómstólsins í Stokkhólmi um tólf ára fangelsi. Þetta gerði dóminn sögulegan, því þetta er í fyrsta skipti sem sænskur ríkisborgari er sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni. Robert Green, bæjarfulltrúi hjá áfrýjunardómstólnum segir:

„Áfrýjunardómstóllinn, líkt og héraðsdómstóllinn, telur að saksóknarinn hafi sýnt fram á að hin ákærða hafi haldið nokkrum jasídískum konum og börnum sem svipt voru frelsi og meðal annars neytt sumar þeirra til að sinna heimilisstörfum, taka þátt í trúarfræðslu og biðja – allt innan ramma þrælahaldskerfisins sem Íslamska ríkið innleiddi.“

„Sænska ÍSIS-konan“ er frá Írak

”Svenska IS-kvinnan” är irakier

Lina Ishaq kemur upphaflega frá Írak. Fjölskylda hennar var kristin flóttamannafjölskylda sem kom til Svíþjóðar snemma á níunda áratugnum. Hún fékk sænskan ríkisborgararétt árið 1984. Lina Ishaq gerðist múslimi eftir að hafa hitt múslimskan mann á þrítugsaldri og parið yfirgaf Svíþjóð árið 2004 og flutti til ýmissa landa, Bretlands, Tyrklands, Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Egyptalands.

Fara efst á síðu