Eva Vlaardingerbroek er ekkert að gefast upp á því að berjast fyrir lýðræðinu, hvort svo sem það er í heimalandinu Hollandi, Evrópu eða bara hvar sem er í heiminum.
Á nýlegu myndskeiði segir hún að Ursula von der Leyen sé að eyðileggja Evrópu.
„Hún er að skipta út fólkinu okkar með innflytjendum, eyðileggja hagkerfið okkar með loftslagsbrjálæði og eyða milljörðum af skattpeningum okkar í erlend stríð og fjandsamleg stjórnkerfi.
Og aðalvandamálið er að þar sem við höfum aldrei kosið hana í lýðræðislegum kosningum, þá getum við heldur ekki losað okkur við hana með því að kjósa einhvern annan.
Við verðum því að leggja niður ESB svo hægt sé að gera Evrópu frábæra á ný.“
Hugsið ykkur ef við ættum svona konu á Íslandi. Óvókaða baráttukonu – ekki bara fyrir kynsystur sínar – heldur allan almenning gegn vók kjaftæðinu. Sem þorir að standa upp og berjast gegn ranglætinu. Hún er til, þær eru margar Evurnar á Íslandi og þær þurfa að fara að taka saman höndum um að hrinda af sér þessari vókuðu valkyrjuímynd sem spilltar stjórnmálakonur lama landið með í dag og það á kostnað skattgreiðenda.
Ísland þarf að afvókast, reka truflaðu valkyrjurnar og fylgikonur þeirra frá völdum svo hægt verði að gera Ísland gott aftur.
