Uppljóstrun: Erlend leyniþjónusta notuð til árása á utanríkisráðherra Ungverjalands

Lekin hljóðupptaka, yfirþyrmandi ásakanir og yfirlýsingar frá leiðtogum ESB hrista upp í Ungverjalandi núna fyrir þingkosningarnar þann 12. apríl. Grunsemdir vaxa um að allt málið kunni að vera samhæfð herferð sem beinist að utanríkisráðherranum Péter Szijjártó. Spurningin er hvort þetta sé tilraun til að hafa áhrif á þingkosningarnar í Ungverjalandi að undirlagi ESB.

Utanríkisráðherra Ungverjalands, Péter Szijjártó, er miðpunktur í sviðsettu hneykslismáli til að skaða ríkisstjórnina og hafa áhrif á úrslit kosninganna. Það er ekkert launungarmál að ESB vill losna við Viktor Orbán. Tilefnið eru fréttir í erlendum miðlum um að Szijjártó hafi látið viðkvæmar ESB-upplýsingar fara beint til Rússlands, ásakanir sem hafa fengið mikla athygli, þrátt fyrir að engin áþreifanleg sönnunargögn hafi verið lögð fram.

Ásökunin: „Tilkynnti beint til Moskvu“

Kjarni ásakananna kemur úr grein í The Washington Post, þar sem því er haldið fram að Szijjártó hafi á fundum ESB miðlað upplýsingum beint til utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov.

Samkvæmt þessum upplýsingum á hann að hafa hringt í Lavrov í fundarhléum og deilt því sem rætt var bak við luktar dyr. Heimildarmaður heldur því fram að „hver einasti ESB-fundur hafi í reynd haft Moskvu við borðið.“

Þetta er mjög alvarleg ásökun. Samtímis þá byggir hún á nafnlausum heimildum; engar upptökur, skjöl eða önnur áþreifanleg gögn hafa verið lögð fram sem staðfesta að slík símtöl hafi í raun átt sér stað.

Notað í pólitískum tilgangi af ESB og Póllandi

Þrátt fyrir skort á sönnunum, þá breiddist orðrómurinn hratt út og var dreift áfram af stjórnmálamönnum innan ESB. Forsætisráðherra Póllands, Donald Tusk, skrifaði á X að upplýsingarnar „ættu ekki að koma neinum á óvart“ og að grunsemdir hefðu verið til staðar lengi.

Aðrir aðilar innan ESB og ungverska stjórnarandstaðan hafa notað orðróminn til að veitast harkalega að ungversku ríkisstjórninni. Politico greinir frá því að Ungverjalandi hafi verið meiinaður aðgangur að umræðum um utanríkismál, Rússland og Úkraínu. Allt bendir til að um svo kallaðan falskan fána er að ræða, það er að segja að ESB hafi einfaldlega búið þetta til í því skyni að útiloka Ungverjaland frá frekari aðkomu og umræðu um fjárframlög og hergögn til Úkraínu. Sem kunnugt er stöðvaði Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands ásamt Slóvakíu 90 milljarða evru fjármálapakka sem ESB vildi senda til Úkraínu.

Ásakanirnar eru meðvitað notaðar til að:

  • draga í efa trúverðugleika Ungverjalands innan ESB
  • setja þrýsting á utanríkisstefnu landsins (gera ungversk stjórnvöld líklegri til að styðja Úkraínu)
  • styrkja stöðu ungversku stjórnarandstöðunnar (undir forystu frjálslynda Tisza-flokksins og ESB-sinnaðs forsætisráðherraefnisins Peter Magyar) fyrir kosningar

Hér virðist því vera um beina kosningaíhlutun ESB í þingkosningarnar í Ungverjalandi að ræða í því skyni að bola ríkisstjórn Viktors Orbáns frá völdum.

Upplýsingar um baktjaldamakk

Samtímis hefur lekin hljóðupptaka verið birt sem bendir til þess að ungverski blaðamaðurinn Szabolcs Panyi hafi átt samskipti við erlenda leyniþjónustu, að því er Magyar Nemszet greinir frá.

Samkvæmt upplýsingunum á hann að hafa afhent símanúmer Szijjártós til erlendrar leyniþjónustu sem geði njósnurum kleift að fylgjast með símtölum utanríkisráðherrans. Í upptökunni er aðferðinni lýst þannig:

„Þetta virkar þannig að vakað er yfir símanúmeri og eftirlit haft með því við hvern hefur verið talað úr því númeri og skoðað hverjir hringja inn og öll samtöl sem hringt er út.“

Augljós tengsl blaðamannsins við ungversku stjórnarandstöðuna hafa komið í ljós. Blaðamaðurinn átti náin samskipti við fólk innan Tisza-flokksins og ræddi meðal annars um áhrif á utanríkisstefnu Ungverjalands ef til valdaskipta kæmi. Þetta hefur vakið grunsemdur um pólitíska herferð gegn Szijjártó.

Ríkisstjórnin vísar öllu á bug

Viktor Orbán. Foto: Wikipedia/ © European Union 2024
Viktor Orbán. Mynd: Wikipedia / © European Union 2024

Af hálfu stjórnvalda er málið sagt vera alvarleg árás á landið. Forsætisráðherrann Viktor Orbán brást skjótt við, samkvæmt Magyar Nemszet:

„Hlerun á meðlimi ríkisstjórnar er alvarleg árás á Ungverjaland. Ég hef falið dómsmálaráðherranum að rannsaka tafarlaust upplýsingarnar um hlerun á síma Péter Szijjártó.“

Szijjártó sjálfur vísar ásökununum á bug í athugasemd við færslu frá pólska varaforsætisráðherranum Radosław Sikorski:

„Falsfréttir eins og venjulega. Þið dreifið lygum til að styðja Tisza-flokkinn við að koma á fót stríðssinnaðri leppstjórn í Ungverjalandi. Það mun ykkur ekki takast!“

Szijjártó fjallar um upplýsingarnar á myndskeiði sem birt var á samfélagsmiðlum um að leyniþjónusta hafi fylgst með honum með aðstoð ungversks blaðamanns: