RÚV notað til að smána þjóðina

Ríkisútvarpið sýnir elítuþátt Gísla Marteins sem heldur að hannn sé fyndnasti maður á Íslandi. Ef þú hlærð ekki að bröndurum hans ertu púkó, sveitó, fullur af fordómum og algjör aumingi með hor. Nýjasti brandarinn var að fá klæðaskiptingin Jón Gnarr sem getur ekki látið neitt tækifæri ónotað til að sýna sprungnar málaðar varir þreytts hugmyndasnauðs gamalmennis á nauðungarskjám landsmanna og kalla það fyndni. Hann þarf ekki að leika neitt, því hann sjálfur er hlutverkið í þætti Gísla. Hroki þessa brandaraliðs nægir minnst fyrir þrennum Nóbelsverðlaunum.

Nú á að fá landsmenn til að hlæja að því, að einhver segir NEI við ESB. Bara hlæja og allt verður í þessu fína. Þeir sem ekki hreyfa varirnar verður hjálpað með Gíslakópíum sem hlaupa um allt og taka landsmenn fyrir gísla. Þeir fá þrjá valkosti: Þú hlærð og þá er allt í lagi. Þú hlærð ekki en segir að þú skiljir ekki brandarann og viljir fara í endurhæfingarbúðir Viðreisnar til að læra að hlæja. Þú segir NEI og verður úthýst úr pólitíska rétttrúnaðar samfélaginu. NEI við ESB þýðir að þú verður settur í holræsið heima hjá Jóni Gnarr það sem eftir er ævinnar sem fær flesta til að íhuga sjálfsmorð með glöðu geði í staðinn.

En í lok dags forsætisráðherrans verður stóra spurningin: Hafa JÁ-sinnarnir ekkert annað að koma með nema lýsingu á blautum draumi Viðreisnar um himnaríkið?

Þeir sem búa í ESB vita hvernig hamingjan er þeim megin; ESB hefur breyst í hernaðarbandalag til að fara í fótspor síðasta stórveldis meginlandsins sem reyndi að tortíma Rússlandi.

Rétttrúnaðar Útvarp Vinstri manna hefur af tilefni baráttunnar um sálir landsmanna tekið upp nýtt merki: Könguló glóbalismans. Gísli Marteinn er ekki einn, þegar hann stendur sem steinn á höfði merkisins. Rauðmálaðar Gnarrvarir merkisins fær landsmenn til að hlæja og ef einhver nær að draga andann á milli kviðanna, þá segir hann, hún og það: Já.

Áfram nú svo kónguló gnarrsins taki ekki alla fyrir gísla sem segja Nei.

Gísli Marteinn kynnir nýtt lógo fyrirtækisins