Úkraína eru stærstu svikin – þriðja heimsstyrjöldin getur skollið á hvenær sem er

Hvaða svik gegn mannkyni eru verst? Stóru svikin fimm sem rædd voru í Swebbtv 30. október, marka djúp spor á mannkyn, þar sem vegið er að grunnþörfum fólks í heiminum. Einn þátttakenda í umræðunum var prófessor Paul Lillrank. Hann telur Úkraínu og frásögnina í kringum stríðið vera stærstu svik nútímans. Hann telur þau vera þau stærstu vegna þess hversu ógnvænleg þau eru og að hvenær sem er geti soðið upp úr og þriðja heimsstyrjöldin orðið að veruleika.

Í þættinum var stríðsæsingurinn á Norðurlöndum gagnvart Rússum rakinn. Paul Lillrank lýsti falsfánaáróðri í sambandi við neðansjávarkapla á Eystrasalti sem fullyrt er að „skuggafloti” Rússlands sé að eyðileggja. Við umfangsmiklar rannsóknir hafa hins vegar engar slíkar sannanir komið í ljós, heldur sannanir fyrir eðlilegum orsökum og eðlilegum bilunum. Hann nefndi einnig dróna sem voru límdir saman og fáránlega illa gerðir sem fundust í Póllandi.

„Maður hefði haldið að reynt væri að koma með trúverðugar lygar en þess er ekki einu sinni gætt,” sagði prófessorinn.

Gústaf Skúlason vitnaði í ræðu Ursulu von der Leyen við opnun Norðurlandaráðs í vikunni, þar sem hún lýsti skæðadrífu af rússneskum drónum um öll Norðurlönd. Mikael Willgert þáttastjórnandi spurði þá: „Já, og af hverju sér enginn þessa dróna sem sagt er að fljúgi um allt hjá okkur?”

Þegar Willgert bað þátttakendur að lýsa skoðun sinni um hvert af svikunum fimm væri það versta, lýsti Gústaf skoðun sinni að femínisminn teldist í hópi verstu svikanna, þar sem hann réðist að grunni mannkyns sem lifandi sköpunar:

„Konur fæða börn og börn þurfa karlmenn sem fyrirmynd sem búið er að taka frá börnum á Íslandi.”

Prófessor Paul Lillrank segir Úkraínustríðið stærstu svikin, og þau bráðustu:

„Ég segi Úkraína. Vegna þess að málið er hið bráðasta og getur sprungið hvenær sem er. Ef illa fer, þá endum við í þriðju heimsstyrjöldinni og þá fer líf okkar allra forgörðum. Ef við fáum frið í Úkraínu getum við rætt hin svikin sem öll eru frekar stór.”