Frá yfirburðasigri yfir í algjöra höfnun kjósendan
Hinn misheppnaði breski forsætisráðherra Keir Starmer er áfram einn óvinsælasti „leiðtogi“ hins vestræna heims, þrátt fyrir tilraunir hans til að mála sig sem áhrifamikinn og alþjóðlega virtan þjóðarleiðtoga.
Fylgi Starmers hrynur jafnt og þétt og núna fáum við að vita að nærri tveir þriðju hlutar Breta vilja að Starmer segi tafarlaust af sér. Svipað hlutfall kjósenda vilja einnig að haldnar verði almennar kosningar nú þegar, samkvæmt nýrri könnun.
„Færri en einn af hverjum fimm telur að forsætisráðherrann ætti að sitja áfram, á meðan nær helmingur þeirra sem kusu Verkamannaflokkinn í almennu kosningunum 2024 vill að hann fari frá völdum.
Sir Keir mun að öllum líkindum verða fyrir auknum þrýstingi um að segja af sér ef Verkamannaflokkurinn stendur sig illa í sveitarstjórnarkosningunum næsta mánuð. Vaxandi trú er innan flokksins að Verkamannaflokkurinn geti ekki unnið næstu almennu kosningar með Starmer sem leiðtoga.“
Keir Starmer has been ridiculed by just about everyone today.
He looks weak, out of depth, irrelevant, clueless and most importantly, finished.
How much longer will his own MPs tolerate their awful polling, the humiliation at home and on the world stage?
Könnun JL Partners sýnir að meirihluti kjósenda, í öllum landsvæðum og aldurshópum, vill að forsætisráðherranum verði skipt út.
„Aðspurðir ‘hvort Keir Starmer ætti að sitja áfram eða fara?’, sögðu 64% að hann ætti að fara og 18% að hann ætti að sitja áfram. Af þeim sem kusu Verkamannaflokkinn árið 2024 sögðu 46% að þeir vildu að hann færi tafarlaust.
[…] Á meðan Verkamannaflokkurinn hefur reynt að upphefja forsætisráðherrann sem alþjóðlegan ríkisleiðtoga á tímum alþjóðlegra átaka, í tilraun til að koma í veg fyrir algjört afhroð í kosningunum 7. maí, er útlitið að niðurstöðurnar verði grimmar fyrir flokkinn.“
NIGEL FARAGE: Starmer is our worst ever PM who believes in nothing except saving his own skin. That's why you must vote to get him out https://t.co/J9oAqUnR7s