Trump hefur ekki bannað forseta Íslands að vera kona

Þegar Hamlet horfði á hauskúpuna hefur hann kannski hugsað „Kona eða ekki kona.” Á Íslandi er það ekki neitt deiluefni að forseti Íslands er kona nema síður sé. En forseti Íslands virðist eiga eitthvað ótalað við kollega sinn handan Atlantshafsála, sérstakan vin Íslendinga, Donald Trump. Alla vega tilkynnti hún það opinberlega í ríkisheimsókn til Noregs í fyrra, að Trump hefði bannað orðið kona á vefsíðum bandarískra yfirvalda ásamt helling af öðrum orðum. Halla sagði það tákn áhugaverðra tíma nútímans að fást við slíkan vanda en ekki að ósekju, því villuráfandi drengir og karlar hefðu kosið manninn sem vissi ekki hvað snéri fram og aftur og snéri sér mest aftur. Lofaði hún að nota það sem eftir væri ævinnar til að hjálpa þeim villuráfandi að komast til betri vega svo hægt væri að loka kynjagatinu illræmda sem enginn veit hversu stórt er eða hvort nokkurn botn sé yfirleitt þar að finna.

Forseti Ísland fer með ósannindi gagnvart lýðræðislega kjörinni stjórn Bandaríkjanna. Tímarnir eru svo sannarlega áhugaverðir, því Trump bannaði karlmönnum að keppa í kvennaíþróttum. Forseti Íslands tekur undir heimatilbúinn áróður transhreyfingarinnar um að Trump hefði bannað orðið kona en það er í reynd transhreyfingin sem ýtir konunni út af borðinu og notar orðin „fæðingaraðili” og „legberi” í staðinn.

Forseti Íslands getur verið róleg – Trump hefur ekki bannað henni að vera kona – hvorki í orði eða á borði

Utanríkisráðuneytið og utanríkismálanefnd Alþingis gætu fengið helstu sérfræðinga landsins og jafnvel erlendis frá til að komast til botns í þessu með Trump og Höllu og hvað gildir í raun og veru. Ef Trump hefur bannað konu, þá verður íslenska ríkið að senda fílhrausta menn á öðru farartæki en hundasleðum til Washington til að ræða við karlinn. Líklegast fengju þeir sama svar og Hvíta húsið sendi út mörgum vikum fyrir óttatilkynningu forseta Íslands, að Trump hefði aldrei bannað orðið kona, allt væri bara misskilningur af því að hann tryði ömmu sinni sem sagði að karlmenn gætu ekki orðið óléttir. Sendinefndin gæti því farið heim til Íslands með þau róandi skilaboð til forsetans að Trump leyfði henni áfram að vera kona.

Bandaríkjamenn fletta ofan af kosningasvindli Evrópusambandsins

Þjóðólfur birti í vikunni nýja skýrslu dómsmálanefndar Bandaríkjaþings, þar sem flett er ofan af ritskoðun ESB á Internet og beinni, grófri íhlutun í kosningar margra aðildarríkja Evrópusambandsins. Íslendingar ættu að vera þakklátir fyrir þennan stuðning að vestan í baráttunni gegn skrímslinu í Brussel sem nokkrar konur á Íslandi vilja draga alla þjóðina til að sænga með. Það eru ljótar sögur eins og af stöðvun forsetakosninga í Rúmeníu eftir að gagnrýnandi ESB hafði sigrað í fyrstu umferð. Það eru einnig ljótar sögur af pólitískri þvingun ESB á netrisana að stunda ritskoðun og beina íhlutun í lýðræðisferli aðildarríkjanna. Nær þessi ófögnuður svo langt út fyrir Evrópu að Bandaríkjaþing segir landsmenn eiga undir högg að sækja með frelsi til að tjá sig. Íslenska þjóðin ætti að gefa ólmu og espuðu konunum frí frá störfum svo þær geti sjálfar farið í sæng skrímslsins í Brussel. Það yrði mikill léttir fyrir landsmenn til sjávar og sveita.

Erlendir milljarðamæringar borga fyrir óeirðirnar í Minnesota

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, býr í Minnesóta nálægt þeim óeirðum sem þar hafa verið að undanförnu. Hún skýrði frá því að mótmælin væru engin grasrótarhreyfing heldur er um launaða atvinnumenn að ræða sem ferðast milli fylkja til að veita alríkisstjórn Bandaríkjanna skrámu. Þeir sem fjármagna þennan óskunda eru menn eins og Soros og aðrir milljarðamæringar meðal annars í beinum tengslum við Kommúnistaflokk Kína.

Þú horfir á þáttinn Ísafold hér að neðan til að heyra hvað fram kemur í nýjasta þættinum:

Fara efst á síðu