Það svíður undan græna svindlinu í Svíðþjóð

Græna svindlið ber nafn sitt með rentu. Fjármálasvindlarar með sama módel og íslensku útrásarvíkingarnir sem gera út á lán og styrki. Sá vinnur sem hefur safnað mestu skuldunum áður en allt er sett á hausinn. Eftir sitja skattgreiðendur og lífeyrisþegar með skert lífskjör en glæpamennirnir brosa og segja að peningarnir hafi horfið til peningahimnaríkis.

Nýjasta svindlið í Svíþjóð er græna stálverksmiðjan Stegra sem grænu víkingarnir hafa fengið lán til að byggja. Hugmyndin er að framleiða grænt kolefnislaust stál og verkefnið hefur verið hafið til skýjanna sem framtíð græna iðnaðarins. En sú framtíð fékk skyndilegan kalda gusu í fyrri viku, þegar hitaveitan lokaði fyrir hitann vegna ógreiddra reikninga fyrirtækisins. Og það var ekki bara einn reikningur heldur margir og hitaveitan orðin þreytt á að senda greiðsluáminningar. Fyrirtækið var þó skjótt að borga svo dugði til að hitinn kæmist aftur á um stundarsakir en ógreiddir reikningar voru frá október í fyrra.

Og það eru fleiri gjaldfallnir reikningar en hjá Hitaveitunni. Hundruðum milljóna skuldir eru hjá verktökum sem ekki fá greitt fyrir vinnuna. Sama sagan þar, gjaldfallnir reikningar síðan í október. Flestir verktakar þora ekki að senda gjaldheimtunni reikninga, því ef…..ef nú fyrirtækinu tækist að hanga eitthvað lengur gegnum frekari fjárstyrki ESB og sænska ríkisins, eða ef hægt væri að plata lífeyrissjóðina eins rafgeymaframleiðandinn Northvolt gerði, – þá kannski, kannski er lítil von um að fá eitthvað fyrir vinnuna. Ekki má styggja þá peningastinnu sem ráðskast með skattfé almennings gegnum ESB og ríkið og ríkisábyrgð á ábyrgðarlausum útlánum bankanna.

Rafgeymaframleiðandinn Northvolt fór á hausinn áður en einn einasti rafgeymir var framleiddur og talað er um stærsta gjaldþrot nútímans í iðnaðinum í Svíþjóð. Lífeyrissjóðirnir brutu lögin og stofnuðu fyrirtæki saman til að blekkja almenning og dæla fé félagsmanna í botnlaust svindl grænu víkinganna. Skaðinn er svo stór að talað er um að skerða þurfi lífeyri Svía á komandi árum til að afskrifa tapið.

Sömu aðilar og voru á bak við Northvolt svindlið eru á bak við Stegra stálsvindlið. Búast má við einum stærsta skelli nútímans, þegar félagið fer á hausinn ef einhverjir góðhjartaðir ríkir náungar koma ekki allt í einu inn með fjármagn til verkefnisins. Forsvarsmenn Stegra segja að ástæða fyrir óborguðum reikningum geti verið að „starfsmaður sem sér um að samþykkja útborganir hafi ekki verið á staðnum og þá er ekki hægt að greiða reikningana.”

Stegra, græna stálið, hefur verið hampað sem stærsta iðnaðarverkefni nútímans í Svíþjóð og stökkpallur yfir í græna framleiðslu stáls á kolefna. Margir bíða eftir ákvörðun um framtíð fyrirtækisins og hvort fyrirtækinu takist að fá inn nýtt fjármagn. Á meðan hlaðast skuldirnar upp og sífellt færri vilja vera nálægt þessu „metnaðarfulla græna verkefni.”