Epstein rífur opið sár í hjarta glóbalista

Klaus Schwab t.v. er ekki hress með eftirmann sinn Børge Brende (samsett mynd). 

Eftir árabil með glansandi ásjónu rifnar ímynd heimselítunnar í Davos. Gögn greina frá því, að Børge Brende, núverandi formaður WEF, var í nánum samskiptum við Jeffrey Epstein . Klaus Schwab brást illa við og núna logar allt í deilum hjá elítunni andlit ráðstefnunnar er laskað.

27 tölvupóstar og smáskilaboð til Epstein. Það var allt sem þurfti til að koma Alþjóðaefnahagsráðinu WEF í alvarlega trúnaðarkreppu að sögn norsku fréttastofunnar E24. Ósemjan innan WEF eykst og þögnin áberandi fyrir fyrir stofnun sem lengi hafa keppst við að halda uppi andlitinu sem ábyrg elíta alls heimsins.

Brende var í tengslum við barnaniðinginn Epstein

Ræddu hvernig Davos gæti komið í stað Sameinuðu þjóðanna

Á árunum 2018 – 2019 skiptust Brende og Epstein á 27 skilaboðum. Í þeim þakkar Brende meðal annars fyrir kvöldverðina og skrifar:

    „Takk fyrir mjög áhugaverðan kvöldverð. Þú ert frábær gestgjafi.“

    En málið fjallaði ekki bara um kurteislegar setningar. Þeir ræddu einnig, hvernig Davos gæti komið í stað Sameinuðu þjóðanna:

    „Einmitt – við þurfum nýja alþjóðlegan arkitektúr. Alþjóðaefnahagsráðið WEF er í einstakri stöðu – bæði opinberlega og í einkamálum.“

    Þetta voru engir venjulegir menn að ræða saman. Einstaklingar sem höfðu bein samskipti við þjóðhöfðingja og ríkisstjórnir um allan heim.

    Klaus Schwab hótar lögsókn

    Þegar Brende hélt því fram að hann hefði upplýst Klaus Schwab, stofnanda WEF, um samskiptin við Epstein árið 2019, svaraði Schwab með eldingarhraða að sögn NRK.

    „Ég hafði munað eftir því. Ég hafði aldrei samþykkt það.“

    Schwab, sem sagði af sér starfinu í apríl 2025 eftir ásakanir um kynferðisafbrot gegn starfsfólki, áskilur sér rétt til að grípa til lagalegra aðgerða ef Brende heldur áfram að dreifa því sem hann kallar „lygi.“ Með því lýsir hann fullkomnu vantrausti á eftirmanni sínum. Glansmynd WEF er rifna fyrir framan augum allra.

    Eftir uppljóstrunina neyðist WEF að skipa óháða endurskoðun. Brende segir að hann hafi sjálfur beðið um hana sem hann hefði aldrei gert nema vegna mikils þrýstings. Hann hefur sent frá sér afsökunaryfirlýsingu og sagt að hann hefði átt að hafna boðum um kvöldverði. Brende starfar áfram á meðan á rannsókn stendur.

    Gríman er fallin

    Fyrir stofnun þeirra ofsaríku sem áratugum saman hafa safnað saman valdamestu einstaklingum heims á bak við luktar dyr, allt frá stórbönkum til leiðtoga ríkisstjórna, þá er þetta þungt kjaftshögg. Það sem lengi var talið vera samheldin elíta rífst núna frammi fyrir opnum tjöldum. Sýnir að mikill hluti starfseminnar þolir greinilega ekki dagsins ljós.

    Óháð því hvernig rannsókninni lýkur, er skaðinn þegar skeður. Hin fágaða gríma sem glóbalistarnir lögðu allt undir að heimurinn myndi trúa á er fallin.