Ríka fólkið er ekki betra – Það er bara ríkara

Ríka fræga fólkið í Ameríku var bókstaflega að drukkna í eigin dyggðaflóði á sjálfsfagnaðarorgíu tónlistariðnaðarins, Grammy-verðlaununum. Hver „stjarnan“ á fætur annarri prédikaði yfir Bandaríkjamönnum um illsku lögreglumanna útlendingaeftirlitsins, stofnunina sem lögum samkvæmt sér um að vísa ólöglegum innflytjendum úr landi.

„ICE Out“ er nú nýjasta tískuslagorð Omnicause-istanna — í stað „Svört líf skipta máli,“ „Fjársveltið lögregluna,“ „Styðjum trans-krakka“ og „Frelsum Palestínu.“ Nýjasta tromp vinstrisinna er: engin landamæri, allir velkomnir, sama hvort þeir komu inn í landið ólöglega eða hafa framið hina verstu glæpi. 

„Enginn er ólöglegur á stolnu landi!“ grét söngkonan Billie Eilish, með „ICE Out“ merki á brjóstinu, á Grammy-hátíðinni á sunnudagskvöldið, fyrir framan æpandi hóp annarra geðtruflaðra milljónamæringa og tónlistarmanna. „FUCK ICE!“

Söngkonan Billie Eilish við hlið bróður síns Finneas O´Connell hefur verið ásökuð um að kynda undir ofbeldi gegn starfsmönnum ICE, þegar hún tók við verðlaunum fyrir söng ársins.

En Billie hefur nú einstakt tækifæri til að láta verkin tala. Ef landið er svo „stolið“ ætti hún e.t.v. að hafa afhent garðyrkjumanninum lyklana að $3 milljóna glæsivillu (keypt þegar hún var 17 ára) hennar í Los Angeles, eða gæjanum sem þrífur sundlaugina hennar. Billie trúir ekki á landamæri, en hún trúir á hins vegar á mannhæðarhá hi-tech öryggishlið til að vernda hennar eigin ofdekraða rass, sem lifir í lúxus á „ættjarðarlandi“ Tongva indíánaflokksins. „Hver sá sem lætur frá sér svona yfirlýsingu ætti samstundis að gefa eignina til indíánaflokksins,“ sagði öldungardeildarþingmaðurinn Mike Lee. Samfélagsrýnar voru sammála: „Bara áminning að Billie Eilish, sem á $53 milljónir, hefur gefið $0.00 til hinna upprunalegu landeigenda…“

Heimili Billie Eilish Glendale.

Eilish var aðeins ein af mörgum fáránlega auðugum stjörnum sem nýttu sér sviðsljósið til að fordæma einu bandarísku stofnunina sem rekur glæpamenn sem eru ekki ríkisborgarar úr landi. Natalie Portman og Ed Norton grenjuðu líka líka á rauða dreglinum yfir brottvísunum.

„Áður en ég þakka Guði ætla ég að segja: ICE Out,“ sagði Bad Bunny, metinn á $100 milljónir. „Við erum ekki dýr, ekki útlendingar, við erum menn — og við erum Bandaríkjamenn.“ Auðvitað beinast aðgerðir ICE ekki að Bandaríkjamönnum. Þær beinast að útlendingum sem ekki aðeins eru hér ólöglega heldur hafa einnig framið glæpi. En það er alveg óþarfi að láta staðreyndirnar flækjast fyrir sér.

Ellen DeGeneres, metin á hálfan milljarð dala, studdi á föstudaginn „Allt lokað — ENGIN VINNA, ENGINN SKÓLI, ICE ÚT allstaðar“ — og fór síðan að glæsivilluversla, sama dag og hún hvatti aðra til að sitja heima og fara ekki í vinnuna.

Hvað á þetta fólk sameiginlegt? Jú, þau eru vinstrisinnar. Enn augljósara: þau eru gríðarlega rík. Og langflestir vellauðugir Bandaríkjamenn eru nú Demókratar. Áður fyrr vörðu Demókratar verkalýðinn, en Repúblikanar voru flokkur auðkýfinga. Nú eru hinir ríkustu eru til vinstri, en verkafólkið styður MAGA.

Innflytjendamálin snúast um beinharða peninga

Innflytjendamálin eru ein meginástæðan. Áður fyrr voru það Repúblikanar sem vildu léttvægari landamæralöggjöf með tilheyrandi ódýru vinnuafli; Demókratar gerðu sér grein fyrir að óheftur straumur innflytjenda bitnar á verkafólki.

Vinstrimenn kalla þá rasista sem vilja stranga landamæralöggjöf og raunverulegar afleiðingar fyrir að brjóta lögin — brottvísun úr landi. En fyrir bandarískt verkafólk snýst málið ekki um kynþætti, heldur beinharða peninga: um samkeppni um störf gegn fólki sem er viljugt til að vinna fyrir brot af verkamannalaunum og án réttinda; um samkeppni á húsnæðismarkaði í lágtekjuhverfum þar sem verkafólk býr (vegna þeirra lélegu launa sem ólögleg samkeppni um störf hefur skapað); um troðfulla almenningsskóla sem verða að taka á móti börnum þeirra sem hér eru ólöglega og um kostnað við heilbrigðisþjónustu sem margar af þessum boðflennum fá ókeypis á kostnað skattgreiðenda.

En fyrir hina ríku snýst þetta líka um beinharða peninga — þeirra eigin. Þeir ráða boðflennurnar sem barnfóstrur, garðyrkjumenn og vinnumenn. Ódýrt vinnuafl knýr allan þeirra lífsstíl. Stefna Trumps um brottvísanir hefur gert það erfiðara að finna ódýrt vinnuafl — og um leið styrkt stöðu bandarísks verkafólks.

Ríka, fræga fólkið flaggandi dyggðunum er ekki góðhjartaðra en þú eða ég. Þau eru bara ríkari.

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur

Fara efst á síðu