Tregða Rússa til að eiga í viðræðum við ESB og forystu Ursulu von der Leyen í Brussel er, að sögn utanríkismálastjóra ESB, Kaja Kallas, vegna þess að Rúsar eru ekki tilneyddir að draga úr kröfum sínum í Úkraínu. Kallas, sem ber ábyrgð á utanríkis- og öryggisstefnu ESB, sagði að ESB krefjist þess að Rússland dragi úr hernaðar- og varnarmálafjárlögum sínum þar sem það sé ógn sem ESB geti ekki sætt sig við í framtíðinni.
Nýlega tók Kaja Kallas þátt í öryggisþingi í Ósló ásamt Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og þar var meðal annars fjallað um stríðið í Úkraínu. Að sögn Kaju Kallas, þá verða Rússar að raunverulega gefa eftir hvað varðar hernaðargetu og vopnabúr til að draga úr ógninni við ESB. Kallas leggur áherslu á að ESB verði að auka þrýsting á Rússland og halda áfram stuðningi sínum við Úkraínu. Hún leggur áherslu á að ESB verði að vera virkur aðili í öllum friðarviðræðum, annars sé hætta á að niðurstöður verði skammvinnar og að Rússar geri það sem þeim sýnist.
Hún varaði við því að áherslan í augnablikinu sé allt of mikil á að þrýsta á Úkraínu til að gefa eftir frekar en að taka á því sem hún telur vera grundvallarvandamál stríðsins. Kallas sagði:
„Ef litið er á síðustu 100 árin hefur Rússland ráðist á að minnsta kosti 19 lönd … Í sumum tilfellum tvisvar eða þrisvar sinnum, og ekkert þessara landa hefur nokkurn tímann ráðist á Rússland. Spurningin er hvernig við tryggjum að þetta stríð haldi ekki áfram og breiðist ekki frekar út.“
Kallas segir það óásættanlegt fyrir ESB að Rússar ákveði sjálfir hversu fjölmennan her þeir hafi eða hversu miklum fjármunum þeir verja til varnarmála Rússlands. Hún telur greinilega að Rússar eigi að falla á kné fyrir framan höfuðstöðvar ESB í Brussel og fagni því að Rússlandi verði stjórnað það.
Kaja sagði einnig:
„Tilslakanir af Rússlands hálfu eru nauðsynlegar eins og að takmarka fjárveitingu til hersins, hergagna og kjarnorkuvopna til að útrýma þessari ógn að fullu sem og ábyrgð á glæpum sem framdir eru. Eins og er, þá er þetta varla til umræðu.“
Usula von der Leyen hefur lýst hernaðargetu á eftirfarandi hátt sem stingur í stúf við kröfur Kallas:
„Rússneski herinn tekur flísar úr uppþvottavélum og ísskápum til að gera við herbúnað sinn, vegna þess að hálfleiðarar eru á þrotum. Rússneski iðnaðurinn er í molum.“
Rússland lýsir forystu ESB sem „óhæfri“ og ófærri um að skilja landfræðilegan veruleika. Peskov hefur sagt að samkvæmt Kreml sé ekkert að ræða fyrr en slíkum leiðtogum innan ESB hafi verið skipt út.
Horfðu á myndbrot úr samtalinu á öryggisþinginu í Ósló:
