Trump þrýstir á Zelensky um að samþykkja frið núna, annars muni Úkraína tapa enn þá stærra landsvæði
Hámarksþrýstingur á Zelensky
Núna þegar árið er að renna sitt skeið, þá eru samningaviðræður um frið í stríði Rússlands og Úkraínu í hámarki.
Í dag greindi Telegraph frá því að Donald J. Trump forseti varaði Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, við því að „hann hafi tíma til jóla til að samþykkja að binda enda á stríðið við Rússland“:
„Sendiboðar Bandaríkjaforseta, Jared Kushner og Steve Witkoff, komu með viðvörunina í tveggja tíma símtali við leiðtoga Úkraínu eftir nýlegar viðræður þeirra við Vladimir Putin í Moskvu.
Trump sagði í öðru viðtali að Úkraína myndi að lokum lúta í lægra haldi fyrir Rússlandi ef samningur yrði ekki undirritaður.“
Trump sagði Evru-glóbalistana vera „slappa“ því þeim hafi ekki tekist að binda enda á stríðið.
„Zelensky skrifaði á samfélagsmiðla á þriðjudagskvöld að hann tæki þátt í „virkri vinnu“ ásamt evrópskum bandamönnum að móta tillögu um að binda enda á stríðið.
Hann sagði blaðamönnum að hann hefði beðið embættismenn um að gera áætlanir um að halda kosningar á meðan herlög væru í gildi innan 60-90 daga eftir að Trump gaf í skyn að Kænugarður væri að grafa undan lýðræðinu.“
Þegar forsetinn var spurður hvað myndi gerast ef Zelensky hafnaði nýjustu tillögum Bandaríkjanna svaraði hann:
„Jæja, hann verður að taka við sér og byrja að sætta sig við hlutina. Þú veist, þegar þú ert að tapa, – vegna þess að hann er að tapa.“
