Vinstri menn þurfa alltaf að finna sér ástæðu til að gera sig merkilega og hljóta fyrirsagnir. Framkvæmdastjórn/stjórn RÚV eru ekki undanskildar. Að fá umsagnir í erlendum miðlum er eftirsóknarvert burtséð frá innihaldi málsins. Það þykir fínt að Ísland sé fimmta ríkið á eftir Spáni, Írlandi, Hollandi og Slóveníu að hoppa af Eurovision vegna Ísrael og þess sé getið í erlendum fjölmiðlum. Palestínski fáninn er vinsælli en sá íslenski að ekki sé nú minnst á þann ísraelska og RÚV fylgir frekar eftir Hamasvinveittum gyðingahöturum en reglum um Eurovision. Stjórn Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva ákvað að ekki skyldi kosið um þátttöku Ísraels í keppninni og RÚV gerir sig merkilegt með því að útiloka íslenska keppendur frá þátttöku í sönglagakeppninni. Svo er sagt að þetta sé ekki pólitík! Hræsnin er takmarkalaus í Efstaleiti.
Samkvæmt niðurstöðu RÚV þá eru þau merki send til umheimsins að Íslendingar séu Gyðingahatarar. Stjórn RÚV misnotar vald sitt til að taka þá pólitísku ákvörðun að vera á móti Gyðingum í Ísrael sem heyja varnarstríð gegn hatrömmum hryðjuverkasamtökum sem ollu mannskæðustu árás á Gyðinga eftir Helförina þann 7. október 2023.
Ísrael er umsetið fjandsamlegum ríkjum. Gyðingar heyja varnarstríð fyrir tilveru sinni gegn hryðjuverkasveitum og stjórnmálaöflum sem hafa aðeins eitt markmið á stefnuskránni: Að útrýma ríki Gyðinga, Ísrael. Að RÚV styðji öfl sem vilja útrýma Ísrael er að sjálfsögðu pólitísk afstaða gegn Gyðingum og sýnir hversu ófær stjórn RÚV er að vinna samkvæmt lögum um starfsemina.
Þar sem stjórn RÚV neitar að fylgja ákvörðunum Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva ætti Alþingi Íslendinga að neita að fylgja ákvörðunum RÚV og sparka öllum stjórnarmönnum nema þeim þremur sem lögðust gegn Gyðingahatrinu.
Ef eitthvað er að marka lög Alþingis, þá verður að fylgja þeim á borði svo vel sem í orði.
