Ísraelski tónlistarmaðurinn Michael HarPaz sendir Gyðingahöturum eins og RÚV og Páli Óskari sem sniðganga Eurovision vegna Ísrael orðsendingu á myndbandi (sjá að neðan). Þar spyr hann, af hverju ekki bara að taka skrefið fullt út og sniðganga ísraelskar vörur líka? Í lokin segir hann: Þið ferðist í heift og fagnið ykkar eigin fáfræði og kallið það siðfræði.
Hann telur upp fjölda vara og tækni frá Ísrael í hlutum sem við notum hversdagslega:
„Þú gætir byrjað á snjallsímanum sem þú heldur á með allri tækni frá Ísrael og hent honum í næsta vatn, nú eða þá mölbrotið fartölvuna vegna þess að wifi sambandið, flash minnið og varnarveggurinn – fyrirgefðu – en allt þetta er framleitt hérna í síonistaríki Gyðinga.
Og ef þú gengur með einhver lífsbjargandi tæki eins og hjartagangráð, insúlíndælu, mammography, ct skanna, ef foreldrar þínir eru í einhverri krabbameinsmeðferð, þá getur þú tekið allt þetta samstundis úr sambandi vegna þess að sniðganga er ekki alvöru sniðganga nema að þú standir heill að baki.“
Michael HarPaz heldur áfram að telja upp meiri tækni sem Ísraelsmenn framleiða öllum til hagsbóta og segir svo:
„Reyndu að lifa án allra þessara hluta í þrjár mínútur án þess að grenja eins og smábarn. Allir þessir hlutir koma frá landinu sem þú uppgötvaðir skyndilega að orðið er vandamál fyrir tónlistina.“
Þið toppið ykkur sjálf þegar Þýskaland er sá fullorðni í herberginu
„En jú, Eurovision, þar kviknar á siðferðisáttavita ykkar. Þið dragið línuna við ballöðu. Ótrúlegt. Og fyndnasti hluturinn? Þýskaland. Þýskaland horfir á ykkur eins og – öhm, krakkar, róið ykkur niður með því að sniðganga Gyðinga. Fólk, þegar Þýskaland er sá fullorðni í herberginu, þá hafið þið virkilega toppað ykkur sjálf.
En hér er sá hluti sem þið létuð þægilega líða hjá að taka með í þessum miklu, dramatísku mótmælum ykkar: Þið gleymið að Ísrael er ekki árásaraðilinn. Við vöknuðum ekki einn morguninn og sögðum „Hæ við skulum ráðast á tónlistarhátíð.“ Við vorum tónlistarhátíðin.
Fyrir tveimur árum, á meðan listamenn ykkar voru að semja sorgleg, akústísk lög á kaffihúsum, þá söfnuðum við líkum á hátíð sem borgarar ykkar hefðu örugglega sótt ef þeir hefðu verið í bænum. Og vitið þið hvað? Hamas sniðgekk ekki hátíðina. Ó, nei. Þeir mættu snemma, dvöldu þar til seint og tóku allt upp á myndband. Í lóðréttu formi svo það spilist vel. Mjög framsækið af þeim.
Og núna komið þið og haldið fyrirlestur yfir okkur? Einu þjóðina á jörðinni sem veit nákvæmlega af eigin raun, hvernig það lítur út þegar tónlistin þagnar vegna þess að hryðjuverkamennirnir stöðvuðu hana.
Vinsamlegast, hlífið okkur. Ef þið viljið sniðganga Ísrael, gerið það. En verið að minnsta kosti svo heiðarleg að þið lifið þá án alls sem við höfum nokkurn tíma skapað. Annars eruð þið engir aðgerðasinnar. Þið ferðist í heift og fagnið ykkar eigin fáfræði og kallið það siðfræði.
Shabbat Shalo“
