Finnski hagfræðiprófessorinn Tuomas Malinen varar við því í færslu á X að rússagrýlan sé að gera út af við Finnland. Hann segir finnska efnahagslífið í afar slæmu ástandi og í reynd orðið að „uppvakningi.“
Tuomas Malinen segir meðal annars að hann eigi vin sem er framkvæmdastjóri stórrar hótelkeðju í miðborg Helsinki, en að fyrirtæki þeirra muni verða fyrir hörmulegu tapi árið 2025.
„Aðalástæðan er sú að rússnesku ferðamennirnir eru horfnir. Fyrirtækið hefur barist í bökkum síðan 2022 en núna er komið að leiðarlokum. Margir Finnar skilja þetta ekki enn en núverandi stjórnmálamenn okkar eru að kála okkur. Efnahagskerfi okkar er þegar andvana. Við ættum að opna landamærin eins fljótt og auðið er og biðja Rússana um að koma til baka og við ættum að yfirgefa evruna. En þeir (stjórnmálamennirnir GS) munu ekki gera það. Þeir vilja frekar drepa okkur. Finnska hagkerfið er uppvakningur sem líklega mun jarða flesta Finna á næstu tveimur árum.“
Hér má kynnast afstöðu prófessorsins nánar:
