Transkona að baki fjöldamorðunum í Kanada

Jessie Strang

Tíu manns létust í skotárás í skóla í Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu í Kanada áður en fjöldamorðinginn tók sitt eigið líf. 25 manns særðust en ekki lífshættulega. Nokkrir fjölmiðlar greina núna frá því að 18 ára transkona að nafni Jesse Strang sé grunaður um að standa á bak við blóðbaðið. Fjölskyldan hefur staðfest, hver morðinginn er.

Annað fjöldamorð skekur Norður-Ameríku og að þessu sinni var gerandinn transkona, að sögn kanadískra fjölmiðla. Samkvæmt Juno News kom frændi hins grunaða árásarmanns fram og staðfesti að transkonan Jesse Strang væri fjöldamorðinginn. Opinber YouTube-reikningur sem tengist nafninu sýnir transfánann og notar fornafnið „hún/hann.“

Skotárásin átti sér stað á þriðjudag í Tumbler Ridge framhaldsskólanum, um 1.100 kílómetra norður af Vancouver. Viðvörun barst klukkan 13:20 að staðartíma og lögreglan sendi frá sér öryggisviðvörun þar sem íbúar voru hvattir til að halda sig innandyra.

Yfirvöld hafa staðfest að tíu manns hafi látist, þar á meðal sá grunaði. Sex manns fundust látnir í skólanum. Sjöundi lést á meðan verið var að flytja hann á sjúkrahús. Tvö lík til viðbótar fundust í íbúðarhúsnæði sem er verið að rannsaka í tengslum við atvikið.

Kanadíska lögreglan, RCMP, hefur sagt að sá grunaði sé kona, en hefur ekki enn staðfest nafn morðingjans opinberlega. Þeir kalla hann „byssupersónu“ í stað „byssumanns.“ Margir fjölmiðlar, þar á meðal Western Standard og Juno News, hafa þó bent á 18 ára gamla Jesse Strang sem hinn grunaða fjöldamorðingja.

Í Bandaríkjunum hafa skotárásir og ábeandi voðaverk verið framin af transfóki.

Íris Erlingsdóttir sendi frá sér meme varðandi fjöldamorðin:

Screenshot