16 ára gamall nauðgaði Teddy Sundin 89 ára gamalli konu í Dalsland í Svíþjóð fyrir framan mann hennar sem var lamaður í hjólastól og gat enga björg veitt. Í dag, eftir að hann hefur skipt um nafn og heitir núna Kid Johansson, er hann enn að nýju ákærður fyrir nauðgun.
Snemma einn sumarmorgun fór hann inn á heimili aldraðrar konu eftir að hafa bankað á dyr. Inni í íbúðinni réðst hann á konuna og nauðgaði henni. Eiginmaður hennar var heima og gat fært sig á hjólastól eftir að hafa heyrt hljóð. Þá varð hann vitni að því þegar eiginkonunni var nauðgað en gat ekkert gert.
Konan hlaut bæði sýnilega áverka og áverka á kynfærin. Hún gat ekki búið heima eftir atvikið og var flutt á annað heimili, þar sem hún lést innan eins árs. Skömmu síðar lést eiginmaður hennar einnig.
Við sama atburð réðst Teddy Sundin sem þá var ólögráða, einnig kynferðislega á aðra konu í húsnæðinu. Hann neitaði sök en var dæmdur í héraðsdómi til vistunar á lokuðu hæli fyrir unglinga. Áfrýjunardómstóll hækkaði síðar dóminn í sjö mánuði.
Núna fjórum árum síðar, er Kid Johansson ákærður aftur. Hin nýja nauðgun var að sögn saksóknara framin í sumar á skráðu heimili mannsins. Fórnarlambið er kona sem hann átti í sambandi við. Johansson var handtekinn í nóvember. Kid Johansson neitar sök. Síðan dómur féll í fyrri árásinni árið 2022 hefur hann einnig verið sakfelldur fyrir mörg önnur afbrot, þar á meðal líkamsárás, árás fyrir dómi og grófan ölvunarakstur.
Þetta er bara eitt dæmi af mörgum um nauðganir gegn eldri konum í Svíþjóð. Elsa 84 ára í Uppsala var nauðgað af manni í heimilsaðstoð við aldraða á vegum sveitarfélagsins. Þá hafði hún ítrekað sagt frá fyrri tilraunum hans en enginn hlustaði á hana. Glæpasérfræðingurinn Anders Östlund rannsakaði nauðganir í Svíþjóð og það kom honum í opna skjöldu að sjá að algengasta ofbeldisafbrotið gegn konum eldri en 60 ár eru nauðganir. Yfir 100 kærur koma inn að meðaltali árlega um nauðganir gegn eldri konum síðan 2021. Oftast eru nauðgararnir ungir karlmenn á tvítugsaldri í störfum hjá sveitarfélögum við heimilishjálp til aldraðra. Stærsta aldursmun sá Anders í nauðgunarmáli 27 árs karlmanns sem nauðgaði 108 ára gamalli konu. Slíkir glæpir voru nær óþekktir í Svíþjóð áður fyrr en árið 2015 komu yfir 36 þúsund einsömul „börn” frá Afghanistan til Svíþjóðar, flest allt ungir menn sem höfðu fleygt skilríkjum sínum. Eldri konur geta ekki valið hvort þær fá konu í heimilishjálpar og aðstoð við eigin þrif eins og að fara í sturtu eða bað en sú krafa hefur fengið aukinn kraft eftir allar nauðganirnar.
