Transfaðir skaut eiginkonu sína, þrjú börn og fjölskylduvin í stúkunni á íshokkímóti í framhaldsskóla á Rhode Island á mánudaginn og olli skotárásin upplausn meðal áhorfendur sem hrópuðu óttaslegnir og tvístruðust í allar áttir.
Tveir létust og þrír aðrir eru í lífshættu á sjúkrahúsi. Lögreglan segir að um fjölskyldudeilu sé að ræða. Árásarmaðurinn, 56 ára Robert Dorgan sem einnig var kallaður Roberta Esposito skaut sjálfan sig á staðnum að sögn lögreglu.
Dorgan var faðir nemanda í útskriftarárgangi í North Providence menntaskólanum, einum af sex skólum sem tóku þátt í samvinnuleikjum, að sögn WPRI. Hann skaut móður sonar síns, þrjú börn þeirra og fjölskylduvin sem voru öll að horfa á leikinn, samkvæmt fréttum.
Móðirin dó á staðnum og eitt barnanna skömmu síðar á sjúkrahúsi. Dóttir mannsins sagði við fréttamenn að faðir hennar væri árásarmaðurinn og að hann hefðir þjáðst af geðrænum vandamálum.
Íshokkíleikurinn var í beinni útsendingu, þegar transfaðirinn sló til og skaut ellefu skotum, sjá X:
Vitni sagði CBS News að sumir héldu að blöðrur hefðu sprungið eða að börn væru að sparka skautum sínum í handriðsvegginn.
Stutt er síðan annar trans að nafni Jessica Strang drap amk. tíu manns í skotárás í skóla í Bresku Kólumbíu, Kanada. Greinilega lagar svo kölluð „kynleiðrétting” ekki geðræn vandamál margra karlmanna sem vilja vera konur og eru færir um að fremja slík ódæðisverk.
