ESB veitir stuðningsmönnum hryðjuverkasamtakanna ISIS hæli „því þeir gætu verið ofsóttir í heimalandi sínu“

Samkvæmt nýjum leiðbeiningum frá hælisleitendastofnun ESB getur fólk sem tengist Íslamska ríkinu fengið hæli í ESB. Þetta er vegna þess að fólk með tengsl við Íslamska ríkið „gæti verið ofsótt í heimalandi sínu.“

Uppfærðar leiðbeiningar frá hælisleitendatofnun ESB (EUAA) skýra hvernig lönd eiga að koma fram við hælisleitendur með tengsl við hryðjuverkasamtökin Íslamska ríkið. ESB telur að samúð með Íslamska ríkinu eigi rætur að rekja til hugmyndafræðilegrar sannfæringar og samkvæmt alþjóðalögum, þá geta einstaklingur fengið hæli vegna hugmyndafræðilegra skoðana sinna að því tilskildu að viðkomandi hafi ekki framið glæp.

Samkvæmt leiðbeiningunum getur stuðningur við hryðjuverkasamtökin verið grundvöllur fyrir hælisleitendur frá Sýrlandi eða Írak þar sem fólk með slík tengsl gæti verið ofsótt í heimalandi sínu og því þurft á vernd að halda. Þetta getur einnig varðað fjölskyldumeðlimi tengdum Íslamska ríkinu.

Í leiðbeiningunum er sagt að ekki skuli veita einstaklingum hæli sem hafa framið glæp eða eru hættulegir þjóðarörygginu.

Stuðningsmenn hryðjuverkasamtaka ISIS geta sótt um hæli sem flóttamenn í ESB.

Í Finnlandi segir Johannes Hirvelä, forstöðumaður upplýsingaþjónustu finnsku útlendingastofnunarinnar Migri, að líkurnar á að einstaklingur með tengsl við Íslamska ríkið fái hæli í Finnlandi séu mjög litlar. Hann segir við finnska útvarpið Yle:

„Ef viðkomandi hefur framið glæp, framið athafnir sem brjóta gegn grundvallarreglum Sameinuðu þjóðanna um frið og mannréttindi eða er talinn vera ógn við þjóðaröryggi, þá getum við neitað hæli.“

Útlendingastofnun Svíþjóðar segist fara yfir umsóknir þar sem farið er fram á alþjóðlega vernd. Per Löwenberg hjá Útlendingastofnuninni segir:

„Ef athugun okkar leiðir í ljós að einhver hefur tengsl við Íslamska ríkið, ættu öll viðvörunarljós að byrja að blikka.“