Ólympíuleikir nútímans opnaðir með háðsför að kristindómnum.
Allur heimurinn horfir á og fáninn dreginn á hvolfi að hún við upphaf Ólympíuleikanna í París 26. júlí s.l. Er það eiginlega tímanna tákn um ástand heimsmálanna um þessar mundir, að ekkert virðist vera eins og það á að vera. Vonandi getur íþróttafólkið unnið ný afrek án þess að þurfa að skipta um kyn eða snúa sér á hvolf og leikarnir fengið að vera í friði fyrir blóðþyrstum hryðjuverkamönnum. Öryggisgæslan er gríðarleg og sjálfsagt ekki vanþörf á í landi sem er að liðast sundur vegna glóbalistastjórnar Emannuel Macron, Frakklandsforseta.
Glóbablöðin fylla síðurnar með hefðbundnum hallelújahrópum um glæsileika opnunarhátíðarinnar og minnast varla á umsnúinn fánann. Samfélagsmiðlar loga ekkert síðra en ólympíueldurinn. Kim DotCom segir opnunarhátíðina vera „lokaathöfn mannkyns.“
The opening ceremony of the Olympics felt like the closing ceremony of humanity.
Margir líta á opnunaratriðin sem háð og spé að vestrænum heim og kristinni trú. Annar skrifar á X:
„Ólympíuleikarnir í París 2024 eru orðnir algjörlega rétttrúnaðar ömurleiki og verið að hæðast að síðustu kvöldmáltíðinni, gullkálfinum “(úr Gamla testamentinu) og jafnvel bleika hestinum úr Opinberunarbókinni. Boðskapur Ólympíuleikjanna er skýr: Kristnir áhorfendur eru ekki velkomnir.“
The 2024 Paris Olympics has gone full Woke dystopian.
The opening ceremony was filled with transgend*r mockery of the Last Supper, the Golden Calf idol, and even the Pale Horse from the Book of Revelation.
Frumkvöðullinn Elon Musk skrifar „Lokadagar hins titrandi társ“ á X-inu og útskýrir í frekari færslum varðandi opnun Ólympíuleikanna að „kristnin er orðin tannlaus“ og að „Þetta var algjör óvirðing gagnvart kristnum mönnum.“