Þýskaland hefur tekið upp nýjar reglur sem krefjast þess að drengir og karlmenn á aldrinum 17 til 45 ára fái leyfi áður en þeir dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði, skrifar Telegraph. Samkvæmt valkostamiðlinum Frjálsir tímar í Svíþjóð er ákvörðunin hluti af stærra framtaki stjórnvalda til að tryggja aðgang að skattgreiðendum og hermönnum fyrir þriðju heimsstyrjöldina.
Nýja regluverkið felur í sér að drengir og karlmenn á þessum aldri verða að sækja um samþykki frá Bundeswehr (þýska hernum) áður en þeir fara úr landi – jafnvel þótt þeir vilji ferðast til annars ESB-lands.
Reglan gildir óháð því hvort tilgangurinn er nám, vinna eða lengri ferðalög. Lagabreytingin er hluti af svokallaðri „nútímavæðingu herþjónustunnar.”
Sem hluti af breytingunum verða allir ungir menn fæddir árið 2008 eða síðar að fylla út skyldubundinn spurningalista um vilja sinn til að gegna herþjónustu ef þeir eru þýskir ríkisborgarar.
Krafan nær hins vegar ekki til kvenna og innflytjenda.
Í raun stangast regluverkið bæði á við Mannréttindasáttmála Evrópu og við sáttmála ESB, sem veitir borgurum ESB rétt til frjálsrar ferða innan sambandsins.
Þar sem lögin ná hvorki til kvenna né innflytjenda má búast við því, að ESB snúi blinda auganu að þessu broti á ferðafrelsi þýskra karlmanna.
Euronews fjallar um málið. Á þýsku er lagatextinn þessi:
„Männliche Personen, die das 17. Lebensjahr vollendet haben, müssen die Zustimmung des zuständigen Karrierecenters der Bundeswehr einholen, wenn sie beabsichtigen, die Bundesrepublik Deutschland für länger als drei Monate zu verlassen.“
Í lauslegri þýðingu á íslensku:
„Karlkyns einstaklingar sem hafa náð 17 ára aldri verða að afla samþykkis frá viðkomandi starfsmiðstöð hersins ef þeir hyggjast yfirgefa Sambandslýðveldið Þýskaland í lengri tíma en þrjá mánuði.“
