Páskarnir eru ásamt jólunum stærsta hátíð kristinna. Upprisa Jesús á páskadagsmorgun er fagnaðarefni öllum jarðarbúum og boðar líf fram yfir dauðann, von í stað ótta, kærleik í stað haturs.
Boðorðin tíu standa af sér tímans tönn, þótt allir haldi þau ekki í heiðri:
1. Ég er Drottinn Guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa.
2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.
4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
5. Þú skalt ekki morð fremja.
6. Þú skalt ekki drýgja hór.
7. Þú skalt ekki stela.
8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.
10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu né nokkuð það sem náungi þinn á.

