Dr. Phil tekur viðtal við Jan Jekielek, yfirritstjóra hjá The Epoch Times, um nýju bók hans „Killed to Order“ í þættinum „The Dr. Phil Podcast“ sem birtist 17. mars 2026.
Dr. Phil fór yfir sönnunargögnin í nýju bókinni „Killed to Order“ og hvatti Bandaríkjamenn til að binda endi á meðvirkni sína í glæpum kínverska kommúnistaflokksins. Kínverski kommúnistaflokkurinn (CCP) drepur trúaða einstaklinga til að selja líffæri þeirra í hagnaðarskyni, samkvæmt nýrri bók sem kynnt var af Dr. Phil McGraw í þætti hans Hlaðvarpi Dr. Phil – The Dr. Phil Podcast.
Dr. Phil sagði:
„Það er til fólk hinum megin á hnettinum sem er á lífi, andar, hugsar, jafnvel biður og hefur þegar verið parað við kaupanda fyrir líffæri sín, lífsnauðsynleg líffæri — augu, hjarta, lungu, lifur, nýru, — blóðflokkur þeirra hefur verið skráður, líffærin metin, og þegar pöntunin kemur inn verða þau drepin til að afgreiða hana.“
8,9 milljarða dollara morðiðnaður
Þáttastjórnandinn frægi tók viðtal við Jan Jekielek, yfirritstjóra hjá The Epoch Times og höfund nýju bókarinnar Drepinn eftir pöntun – Killed to Order: China’s Organ Harvesting Industry and the True Nature of America’s Biggest Adversary, um það sem Jekielek lýsti sem „ógurlegri vél“ sem Kommúnistaflokkur Kína, CCP, hefur byggt upp á síðustu tveimur áratugum. Dr. Phil sagði:
„Ég veit að þetta hljómar eins og eitthvað úr hryllingsmynd. Ég veit að þetta hljómar eins og eitthvað sem maður myndi venjulega afskrifa sem samsæriskenningu. Því miður hefur þetta verið vel skjalfest eftir 20 ára rannsóknir. Þetta er ekki skáldskapur. Þetta er stefna. Þetta er iðnaður. Raunar er þetta 8,9 milljarða dollara árlegur iðnaður sem rekinn er af kínverska kommúnistaflokknum og þetta er að gerast akkúrat núna.“
Fórnarlömbin fremst iðkendur Falun Gong og Úígúrar
Helstu fórnarlömb þvingaðrar líffærauppskeru CCP eru iðkendur Falun Gong og Úígúrar í Xinjiang. Falun Gong, einnig þekkt sem Falun Dafa, er andleg iðkun sem felur í sér hugleiðsluæfingar og byggir á meginreglunum: sannleikur, samúð og þolinmæði. Iðkunin, sem var kynnt árið 1992, óx hratt á tíunda áratugnum og árið 1999 töldu yfirvöld að á milli 70 og 100 milljónir manna stunduðu hana. Þá snerist CCP gegn iðkuninni og hóf ofbeldisfullar ofsóknir gegn iðkendum Falun Gong sem halda áfram enn í dag.
Eins og Jekielek rekur í „Killed to Order,“ þá fóru líffæraígræðslur að aukast hratt í Kína árið 2000, landi sem á þeim tíma hafði ekkert líffæragjafakerfi. Um 2015 hafði fjöldi ígræðslusjúkrahúsa vaxið í yfir 100 og gögn bentu til þess að annar hópur væri einnig notaður: Úígúra-múslimar, um 12 milljón manna þjóðarhópur sem er aðallega staðsettur í norðurhluta Xinjiang.
„Við erum að tala um fólk sem hefur ekkert annað ‘glæpaverk’ framið en það sem það trúir á“ sagði Dr. Phil og vísaði til símtala sem leynirannsakendur höfðu tekið upp, þar sem kínversk sjúkrahús voru spurð um útvegun líffæra og svör bárust um að þau kæmu frá iðkendum Falun Gong.
Svæfing ekki notuð við morðin – gæti skaðað líffærin
Til þess að kínversk sjúkrahús geti lofað biðtíma upp á eina til fjórar vikur, eins og heyrist í sumum þessara upptaka, sagði Dr. Phil að gagnagrunnur fórnarlamba með skráða blóðflokka og prófanir hljóti að vera gríðarlega stór:
„Því þú þarft að finna samsvörun. Það þarf að vera mjög nákvæmt til að forðast höfnun. Að para við einhvern sem þarf ígræðslu. Þetta er ekki bara eitt á móti einu. Þú þarft stóran hóp til að velja úr.“
„Killed to Order“ byggir á gögnum úr óháðum rannsóknum sem hafa farið fram í nær tvo áratugi. Þar á meðal eru kínversk sjúkrahús sem auglýsa líffæri eftir pöntun með verðlistum og tveggja vikna biðtíma, vitnisburðir skurðlækna sem voru neyddir til að framkvæma þessar ígræðslur, og iðkendur Falun Gong sem hafa greint frá því að blóð- og læknisrannsóknir hafi verið framkvæmdar á þeim eftir að þeir voru handteknir af handahófi af kínverskum yfirvöldum.
„Þetta er að gerast bæði hjá fullorðnum og börnum,“ sagði McGraw eftir að hafa skoðað verðlista líffæra sem fannst á vefsíðu kínversks sjúkrahúss, þar sem aðskilin verð voru gefin upp fyrir líffæri barna og fullorðinna:
„Og til að gera þetta enn verra segja uppljóstrarar okkur að í mörgum tilvikum sé engin svæfing notuð, því ef svæfing er notuð getur hún skemmt líffærið.“
Líffæraiðnaðurinn spegilmynd af stjórnarfari kommúnismans
Dr. Phil og Jekielek ræddu einnig að stofnanir í Bandaríkjunum halda áfram að þjálfa kínverska ígræðsluskurðlækna. Dr. Phil:
„Ættum við að vera að þjálfa lækna ef við vitum að möguleikinn er fyrir hendi að þeir fari aftur til Kína og verði fyrir áhrifum frá kínverska kommúnistaflokknum til að gera svona hluti? Þeir eru þjálfaðir hér. Það er Hippókratesareiðurinn, ‘fyrst og fremst, skaðaðu ekki,’ en fara síðan aftur þangað og undir þrýstingi frá CCP, jafnvel þótt þeir telji þetta rangt, undir þrýstingi og ótta, eru þeir neyddir til að gera þetta.“
Jekielek bætti við að sumir rannsakendur telji að í Kína hafi það orðið svo eðlilegt að fjarlægja líffæri úr lifandi fólki — í andstöðu við regluna um að gjafar séu látnir sem gildir annars staðar — að kínverskir læknar skrifi slíkar aðferðir beinlínis inn í vísindagreinar sínar. Rannsókn frá 2022, birt í American Journal of Transplantation, fann 71 slíka greinar af nær 3.000.
Dr. Phil lýsti áhyggjum af því að bandarískar stofnanir „litu undan“ vegna þess hve háð Bandaríkin eru Kína um margt, þar á meðal lykilhráefni í sumum af þeim 450 lyfjum sem eru á skortlista í Bandaríkjunum.
Jekielek sagði að kerfi CCP um þvingaða líffærauppskeru afhjúpi eðli stjórnkerfisins:
„Þessi iðnaður er rökrétt niðurstaða þess kerfis og hvernig það starfar, hvernig það hugsar og hvernig það hegðar sér — að gera fólk samsekt og draga það inn í kerfið, og láta það fremja hræðilega hluti sem það myndi aldrei gera í eðlilegu samfélagi.“
