Staksteinar Morgunblaðsins eru verðugur háðspistill sem í dag fjallar um blaður íslenska utanríkisráðherrans á erlendri grundu. Hæðast Staksteinar réttilega að utanríkisráðherranum sem telur lausn sjávarútvegskaflans í aðlögun Íslands að ESB felast í því að ESB taki upp fiskveiðistjórnarkerfi Íslands. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur er fyrirmunað að lesa Lissabonsáttmálann þar sem ESB fer eitt og sér með vald til alþjóðasamninga og líffræðilegra auðlinda hafsins. Þar verða yfirráð Íslands yfir eigin auðlind afnumið og sett í hendur miðstjórnarinnar í Brussel. Flúðu landnámsmenn Íslands ofríki erlendra fjandsamlegra afla til þess að sjálfstæðið yrði aftur af þeim tekið nokkrum kynslóðum síðar?
Ef nú Þorgerður Katrín og Kristrún Frostadóttir halda því fram að Ísland fái sæti við borðið til að semja um hlutina í þeim málaflokkum, þar sem ESB deilir valdheimildum með aðildarríkjunum eins og bæði í landbúnaði og sjávarútveg (að frátalinni varðveislu líffræðilegra auðlinda hafsins), þá eru lög ESB æðri lögum aðildarríkisins ef upp koma deilur í samstarfinu.
Allir sjá núna að ekkert lýðræði ríkir í ESB eða að lögum eigi að fylgja, þegar himinháar fjárgreiðslur eru á löglegan hátt stöðvaðar til Úkraínu og þeir sem notuðu réttindi sín til að gera slíkt eru hunsaðir og eltir sem svikarar ESB samtímis og Ursula van der Leyen lofar að finna leið fram hjá lögum ESB.
En á Íslandi, þar sem ofurkonur á borð við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir telja sig vera ríkið, þá er reynt að telja fólki trú um að Ísland geti fengið ESB til að aðlaga sig að Íslandi en ekki þveröfugt, því það er Ísland sem er að sækja um inngöngu í ESB en ekki ESB að sækja um inngöngu í Ísland. Þorgerður hefur lýst því yfir að hún muni aldrei láta forræði Íslendinga á eigin sjávarauðlindum fara frá landinu á sama tíma og hún er að afhenda auðlindir og sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar til Brussel.
Kannski á að ala upp heila kynslóð ólæsra og óskrifandi Íslendinga svo hægt verði að fela innihald Lissabonsáttmálans fyrir þeim. Þjóðólfur tekur undir með lokaorðum Staksteina:
