Forseti Trump hótaði á laugardagskvöld að gereyða raforkuverum Írans ef þeir opna ekki Hormúsundið að fullu.
„Ef Íran OPNAR EKKI AÐ FULLU, ÁN HÓTANA, Hormússundið innan 48 KLUKKUSTUNDA frá þessu augnabliki, munu Bandaríki Norður-Ameríku ráðast á og GEREYÐA ýmsum RAFORKUVERUM þeirra OG BYRJA Á ÞVÍ STÆRSTA FYRST! Þakka ykkur fyrir athyglina á þessu máli. Forseti DONALD J. TRUMP.“

Viðvörun forseta Trump kemur á sama tíma og Íran leyfir einungis ákveðnum skipum, þar á meðal olíuskipum, að fara um Hormússundið. Íran hefur lokað Hormússundinu fyrir öllum olíuskipum og öðrum skipum nema fáeinum samþykktum skipum. Olíuverð rauk upp í 112 dollara á tunnu í kjölfar lokunar Hormússundsins og árása Írans á olíuaðstöð í Katar. 20% olíuflutninga heims fer um Hormússundið.

Síðastliðinn þriðjudag birti bandaríska herstjórnin CENTCOM óflokkað myndband af árásum bandaríska hersins á íranska sjóherinn í Hormuz-sundinu. Myndbandið sýnir íranskan kafbát og minni skip vera sprengd í loft upp. CENTCOM sagði:
„Bandarískar hersveitir eru að draga úr getu íranskra stjórnvalda til að beita valdi á sjó og áreita alþjóðlega skipaumferð.“
„Í mörg ár hafa írönsk herlið ógnað frelsi siglinga á hafsvæðum sem eru lykilatriði fyrir öryggi og velmegun Bandaríkjanna, svæðisins og heimsins.“
Forseti Trump hafði áður varað Íran við að leggja tundurdufl í Hormússundið. Hann skrifaði á Truth Social:
„Ef Íran hefur lagt út einhverjar sprengjur í Hormússundið og við höfum engar staðfestar fregnir af því að svo sé, þá viljum við að þær verði fjarlægðar STRAX!“
„Ef af einhverjum ástæðum hafa verið settar út sprengjur og þær eru ekki fjarlægðar tafarlaust, verða hernaðarlegar afleiðingar fyrir Íran á þeim mælikvarða sem aldrei hefur sést áður. Ef þeir hins vegar fjarlægja það sem kann að hafa verið lagt út, þá verður það stórt skref í rétta átt!“
„Að auki notum við sömu tækni og eldflaugagetu og beitt hefur verið gegn fíkniefnasmyglurum til að útrýma varanlega hverjum þeim báti eða skipi sem reynir að setja út tundurdufl í Hormússundið. Þau verða afgreidd hratt og með hörku. GÆTIÐ YKKAR!“
