Drenglyndi opnar eigin heimasíðu

Helg Dögg Sverrisdóttir segir frá því á blog.is að félagsskapurinn Drenglyndi á Akureyri hafi opnað eigin heimasíðu. Drenglyndi er hópur fólks á Akureyri sem samanstendur af foreldrum leik- og grunnskólabarna og kennurum sem annt er um að börnum sé sagður sannleikur í skólakerfinu þegar kemur að kyni.

Þjóðólfur hvetur foreldra hvar sem er á landinu til að hafa samband við Drenglyndi sem einnig er í tengslum við svipuð foreldrasamtök erlendis.

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:

Nú er komið að því, Drenglyndi opnar heimasíðu; Drenglyndi.is

Drenglyndi hefur víða gert athugasemdir við núverandi kerfi, þegar trans hugmyndafræðin er annars vegar, bæði hjá Akureyrarbæ og ráðuneyti.

Drenglyndi hafnar að hlutlaus stofnun eins og skóli og kirkja flaggi svokölluðum trans-frána (inngildingarfána) þar sem áróður gagnvart börnum birtist með flögguninni. Vilji þessar stofnanir flagga fána á það að vera íslenski fáninn.

Hópurinn sendi inn erindi til Persónuverndar þar sem vafi leikur á hvort bænum sé leyfilegt að afhenda upplýsingar um börn eins og samningur bæjarins við lífsskoðunarfélagið Samtökin 78 kveður á um. Enn er beðið eftir svari Persónuverndar.

Umboðsmaður Alþingis hefur fengið erindi frá hópnum og Fjölmiðlanefnd líka.

Skjáskot af heimasíðu Drenglyndis

Allt mun þetta birtast á vefnum, ásamt góðum greinum, fréttum af Drenglyndi og fróðleik. Finna má krækjur á systur- og baráttusamtök, sem berjast fyrir því sama og Drenglyndi, víða um heim. Fræðslumyndbönd og viðtöl um trans hugmyndafræðina verða aðgengileg á heimasíðunni með tíð og tíma. Sumt af því á eftir að vekja fólk til umhugsunar og það er markmiðið. Vekja fólk upp af þeim svefni sem það hefur sofið í tengslum við þessa hugmyndafræði.

Það er von Drenglyndis að heimasíðan veiti annað sjónarhorn inn í umræðuna um trans hugmyndafræðina. Drenglyndi hvetur lesendur til að deila síðunni svo fleiri fái notið þess fróðleiks sem hópurinn deilir.

Stefna Drenglyndis er að útbúa skjal þar sem foreldrar geta prentað út og afþakkað fræðslu lífsskoðunarfélagsins Samtakanna 78 fyrir barn sitt, sé skólinn svo óheppinn að sveitarfélagið hafi gert samning við samtökin.

Foreldrar eru í fullum rétti til að hafna fræðslunni frá þessum ákveðna aðila fyrir barnið sitt.

Þökkum góðar viðtökur.