
Þúsundir manna söfnuðust saman í Lyon á laugardag til að krefjast réttlætis eftir morðið á 23 ára íhaldssama kaþólska námsmanninum Quentin Deranque. Deranque hlaut banvænan heilaskaða eftir að hafa verið laminn sundur og saman af félagsmönnum Antifa fyrir að styðja kvennasamtökin Nemesis sem mótmæltu öfgavinstri ESB þingkonunni Rima Hassan við háskólann í Lyon.
Quentin 23 ára gamall (á mynd) átti enga möguleika á að lifa af árás Antifa hrottanna.
Sjö ákærðir fyrir morðið
Sjö einstaklingar hafa verið ákærðir í tengslum við árásina sem gerðist í tengslum við mótmæli sem beindust að öfgavinstri ESB-þingkonunni Rima Hassan við Sciences Po Lyon. Samkvæmt fjölmiðlum staðarins tengjast margir þeirra grunuðu Ungliðahreyfingu Antifa sem stofnuð var í Lyon árið 2018 af þingmanninum Raphaël Arnault hjá flokknum La France Insoumise.
Meðal þeirra sem eru ákærðir eru Jacques-Elie Favrot, þingmaðurinn Arnault og Adrian Besseyre sem áður starfaði fyrir þingmanninn. Málið hefur vakið athygli þjóðarinnar á ofbeldi öfgavinstri manna, sem bera ofbeldi með sér hvert sem þeir fara.
Antifa morðingjar
Yfirvöld greindu frá því að amk. kosti 3.200 mótmælendur hefðu tekið þátt í mótmælagöngunni á laugardaginn, sem haldin var undir ákallinu „Réttlæti fyrir Quentin.“ Meðal þess sem heyrðist í mótmælagöngunni var „Antifa morðingjar“ og „Setjum unga varðliðið í fangelsi, frelsum borgina Lyon“.
Öfgavinstrimenn drepa
Aðrir þátttakendur báru skilti með textanum: „Öfgavinstrimenn drepa.“
Jordan Bardella, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, ráðlagði flokki sínum að taka ekki þátt í mótmælunum. Fleiri mótmæli voru tilkynnt í Rennes, Brest, Saint-Brieuc og Châteauroux.
Þrátt fyrir spennu og viðveru and-mótmælenda fóru mótmælin friðsamlega framog og lauk án átaka. Skipuleggjendur luku göngunni með því að breiða út borða með textanum: „Hvíl í friði félagi“ og sungu „La Marseillaise.“
