Einfaldari öpp og vefsíður eins og Spotify og Bolt áttu að bjarga Evrópu þegar Bandaríkin og Kína tóku yfir hátæknisviðið. En núna varar stofnandi Bolt, Markus Villig frá Eistlandi, við því að þessi mynd sé ekki rétt og spáir því að skortur á raunverulegri tækniþróun muni leiða til efnahagslegs stórslyss í Evrópu. Hann vill að ESB banni erlenda tækni til að útiloka samkeppni frá sterkari aðilum.
Að sögn Villigs stendur álfan frammi fyrir afgerandi tæknibreytingum þar sem málið sé ekki fleiri öpp, emojar og þess háttar, heldur í staðinn til dæmis sjálfkeyrandi bílar en þar er Evrópa í vonlausri stöðu langt á eftir öðrum.
Bílaiðnaðurinn er verulegur hluti af efnahagskerfi Evrópu og á hættu á að veikjast, þegar tækniþróun er sett í biðstöðu og skipt út fyrir pólitísk verkefni eins og rafhlöðuverksmiðjur.
„Án sjálfkeyrandi tækni er bílaiðnaður Evrópu búinn að vera“ segir Markus Villig við Sænska Dagblaðið.
Bolt, sem hefur byggt upp viðskipti sín á leigubílaferðum og sendingum, sér milljónir ökutækja sinna í evrópskum borgum sem tæki til að safna nauðsynlegum gögnum til að byggja sjálfkeyrandi kerfi.
Spurningin að sögn Villigs er hver það verður sem mun stjórna tækninni, þegar hún verður útbreidd. Villigs segir:
„Þessi tækni mun koma hingað fyrr eða síðar. Eina spurningin er hvort við flytjum hana inn frá Bandaríkjunum eða Kína eins og við höfum gert með samfélagsmiðlana og leit á netinu eða hvort við byggjum hana sjálf.”
Hann bendir á að evrópsk fyrirtæki hafa áður lotið lægra haldi í samkeppninni af bandarískum aðilum með meira einkafjármagn.
Willigs vill að ESB banni erlenda tækni til að verja evrópskan iðnað fyrir erlendri samkeppni.
