Meðferð þjóðmála og inngangan í ESB

Mánudaginn 23. febrúar klukkan 20.00 heldur málfundafélagið Frelsi og fullveldi fund um Meðferð þjóðmála og inngönguna í ESB í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Frummælendur eru Páll Vilhjálmsson kennari og bloggari og Haraldur Ólafsson veðurfræðingur og formaður Heimssýnar.

Ríkisstjórnin þrýstir á inngöngu Íslands í Evrópusambandið en leikur skollaleik á mörgum stigum. Einn er sá að segja að atkvæðagreiðslan um ESB sé um „hvort ríkisstjórnin eigi að hefja aðildarviðræður við ESB.” Það er algjör blekking, því Ísland er þegar í bullandi aðlögunarferli eins og samningar utanríkisráðherra og sjávarútvegsráðherra sína.

Í reynd eru forsætisráðherrann og utanríkisráðherrann amtsstjórar framkvæmdastjórnar ESB á Íslandi og fylgja áætlun ESB um yfirtöku á Íslandi.

Ríkisstjórnin gæti alveg eins spurt, hvort landsmönnum þætti rjómi góður, því eina svarið sem tekið verður mark á er orðið já. Síðan verður hlaupið með tilbúinn samning til Höllu á Bessastöðum til að skrifa undir og áður en fólk hefur náð að nudda stírurnar úr augunum verður Ísland gleypt með húð og hári.

Nú þarf þjóðin að leggja við hlustirnar og finna sér nýja alvöru leiðtoga sem ekki svíkjast undir merkjum. Páll Vilhjálmsson og Haraldur Ólafsson eru tveir slíkir menn.