Spilling, spilling og enn þá meiri spilling. Er enginn endir á þessu öllu saman? Hvernig eiga 180 þúsund manns að standa undir þessu öllu saman, peningaþvotti í Úkraínu, vopnakaupum og feluleik með „mannúðar” verkefnum?
Íslensk stjórnvöld eyða peningum hart vinnandi landsmanna eins og það sé endalaust til af þeim á sama tíma og bótaþegum fjölgar í öðru veldi. Ný tenging við vísitölu bætist ofan á kerfi þar sem þegar er ákjósanlegra fyrir marga að lifa á ríkisjötunni í staðinn fyrir að vinna.
Hvað varð um íslenska blóðið að strita í sveita síns andlits? Eru Íslendingar orðnir svo snobbaðir að það þurfi að flytja inn útlendinga til að vinna störf sem áður var sjálfsagt að vinna?
Og hvers lags kvennabarátta er það sem hrifsar meira en helmingi meiri pening úr ríkiskassanum en karlmaðurinn fær sem er einstæður faðir með börn?
Hvernig stendur á því, að næstum 7 þúsund útlendingar eru skráðir með lögheimili á Íslandi án þess að gefið sé upp heimilisfang sem gera skal samkvæmt lögum? Hvað eru margir þeirra erlendis og fá sendan pening frá Íslandi til sín?
Svo virðist alltaf mega bæta á opinbera yfirbyggingu, núna síðast með fjölgun hlaupandi kílómetersskrásetjara sem pára þá tölu á blað sem kvelja á bíleigendur með.
Og svo er það ESB, – sjálft almættið hristir höfuðið. Kolefnisgjald sem er að drepa Evrópu er komið til Íslands og er að drepa Íslendinga.
Eitt er þó satt eins og skáldið sagði:
Sérhver þjóð fær þá stjórn sem hún á skilið.
Kannski er síðasta lestin til London löngu farin og núna verða þeir að flýta sér sem ætla að ná síðustu flugvélinni til Íslands…..
Smelltu á spilarann hér að neðan til að horfa á þáttinn:
