Daglegar sprengjuárásir í Stokkhólmi

(Myndin er tekin við eina af fjölmörgum sprengjuárásum í Stokkhólmi).

Sprengja var sprengd á bílastæði í Rotebro, Sollentuna í Norður-Stokkhólmi sunnudagskvöld. Enginn særðist en skemmdir urðu á bílum. Þá var sprengjuárás gerð á fjölbýlishús í Upplands Väsby í Norður-Stokkhólmi skömmu síðar. Enginn særðist. Lögreglan veit ekki hvort um samband er að ræða í sprengjuárásunum.

Blaðafulltrúi lögreglunnar Daniel Wikdahl segir að þjóðlega sprengjuvarnarliðið hafi verið kallað út og vann á vettvangi í nótt.