Þrátt fyrir gagnrýni: Hægt verður að dæma 13 ára ungling í fangelsi

Sænska ríkisstjórnin heldur áfram með tillögur um að lækka sakhæfan aldur afbrotamanna í Svíþjóð. Frá og með í sumar verður hægt að dæma börn frá 13 ára aldri í fangelsi fyrir alvarlegustu glæpi eins og morð, vopnabrot, skot- og sprengjuárásir.

Þrátt fyrir mikla gagnrýni frá samráðsaðilum kýs sænska ríkisstjórnin að innleiða sögulega breytingu á sænskum refsilögum. Frá og með 3. júlí verður hægt að dæma börn í fangelsi frá 13 ára aldri. Dómsmálaráðherrann Gunnar Strömmer tilkynnti þetta á blaðamannafundi á mánudag. Tillagan þýðir að börn á aldrinum 13 – 15 ára verða svipt frelsi sínu fyrir mjög alvarleg glæpi. Gunnar Strömmer segir:

„Við verðum að stöðva notkun glæpagengja á börnum og ungmennum“

Bakgrunnurinn er mikil aukning alvarlegra glæpa þar sem börn eru notuð til að fremja afbrot. Samkvæmt sænskum yfirvöldum voru 52 börn undir 15 ára aldri þátttakendur í morðum eða morðáætlunum á síðasta ári. Í dag er ekki hægt að dæma börn á þeim aldri til refsingar, heldur eru þau aðallega í umsjón félagsþjónustunnar.

Breyting laganna hefur mætt mikilli gagnrýni frá fleiri stofnunum. Fangelsismálastofnunin í Svíþjóð hefur varað við miklum erfiðleikum við að taka á móti svo ungum föngum. Saksóknari hefur einnig lýst efasemdum. Þrátt fyrir það telur sænska ríkisstjórnin enga aðra fýsilegri kosti vera í boði. Strömmer undirstrikar að:

„Enginn hefur hingað til komið með trúverðuga lausn á því, hvernig við eigum að takast á við börn sem fremja morð og sprengjuárásir.“

Lögin taka yfir alvarlegustu glæpina eins og morð, alvarleg vopnabrot, sprengjuárásir og alvarlegar nauðganir og verður lágmarksrefsing fjögurra ára fangelsi. Minni alvarlegir glæpir leiða ekki til fangelsisvistunar heldur verða viðkomandi í umsjón félagsþjónustunnar.

Lögin gilda í fimm ár og þá verður reynslan metin. Fyrir þá yngstu dæmdu verður innleidd refsilækkun. Til dæmis mun 13 ára gamall einstaklingur geta fengið allt að 90% lækkun refsingar.

Refsingin verður afplánuð í sérstökum ungmennadeildum innan sænska fangelsismálastofnunarinnar, þar á meðal á stofnunum eins og Kumla. Í sumum tilfellum mun dómstóllinn einnig geta valið eftirlit í stað fangelsisvistar.

Á sama tíma boðar ríkisstjórnin enn frekari hertar aðgerðir fyrir ungmenni. Refsiafsláttur verður alveg afnuminn fyrir fólk á aldrinum 18 – 20 ára fyrir alvarlegustu brotin. Fyrir aldurshópinn 15–17 ára verður refsifslátturinn lækkaður sem þýðir lengri dóma en í dag.

Fara efst á síðu